OFUR-Hekla og

súper-vonda-leiser-skjaldbakan-sem-planar-heimsyfirráð

einusinni/einn vondann veður dag var Hekla Hundur að

labba útí á götu í bandi þegar hún skindilega heyrir

ÖSKUR!!!
“AAAAAAAAAAAGH!!!!”

HEKLA STEKKUR UPP!!! og er alltíeinu komin með skykjuna

sína og

dótiðþarnasemferfyriraugunsvofólk/hundarþekkjahanaekki
og hún STEKKUR upp og hoppar að öskrinu því hún getur

ekki flogið en getur stokkið über hátt!

þegar hún kemur þá sér hún hvar lítill álfur liggur á

jörðinni og er að borða gras því að stór eðla hótaði

honum með gatara.
álfurinn hafði öskrað þegar hann sá eðluna koma að sér

með gatarann…

OFUR-hekla stekkur á eðluna og nartar í puttana á henni

svo að hún missir gatarann og þá pissar OFUR-Hekla á hana

svo að hún hleypur í burtu!
þegar OFUR-Hekla kemur aftur í secret hideoutið sitt sem

er fyrir neðan búrið, það opnast gólfið þegar þú opnar

hurðina fimm sinum. vúpps! núna er ekki secrethideout

lengur!
ooojæja…

þegar hún kom þangað fór hún úr búningnum og horfði á

fréttirnar.
hún sá að aðal fréttina! hún var um þessa liiitlu

súper-vondu-leiser-skjaldböku-sem-planaði-heimsyfirráð!
Hekla stökk í OFUR-Heklu búninginn og stökk út og hoppaði

þarsem var verið að taka fréttina í beinni…
OFUR-Hekla sparkaði í

súper-vondu-leiser-skjaldböku-sem-planaði-heimsyfirráð

svo fast að hún skaust allaleið til KÍNA!!!
neijjj… kanski ekki svo langt… ok. hún skaust frá

Garðabæ og allaleið uppá þakið á kringlunni!
OFUR-Hekla hoppaði þangað og tók upp OFUR-hundakexið og

notaði það til að yfirbuga

súper-vondu-leiser-skjaldböku-sem-planaði-heimsyfirráð,

en það dugði ekki til!
hún tók þá upp OFUR-kanínubangsann og kastaði í

súper-vondu-leiser-skjaldböku-sem-planaði-heimsyfirráð!
Súper-vonda-leiser-skjaldbakan-sem-planaði-heimsyfirráð

rotaðist! OFUR-Hekla batt hana þá og fót með hana í

fangelsið. Þetta er endirinn af

súper-vondu-leiser-skjaldböku-sem-planaði-heimsyfirráð.
og allir lifðu happily ever-after. eða þangað til að

næsta OFUR-Heklu saga kemur :)
-Endi