Hæ mín kæra dagbók Bigga Jóns hér..

Helgin er sirka hálfnuð þegar þetta er ritað og það sem er búið af henni er alveg búið að vera hreint út sagt GEGGJAÐ en ég vann ferð til Spánar og svo hringdi ég inn í HLUSTAÐU Á HLJÓÐIÐ á Fm og vann hvorki meira né minna en 370 þús. kall það var æði , en ég tel það vera ágætis vasapening. Er svo bara búin að taka því rólega hér í svítunni minni í Róm…

En allavega farið var hingað og þangað….flogið út og suður, norður og niður. Ég fékk tilboð um að gerast leikari í stórmyndinni Titanic 2 og á víst að leika á móti Leonardo nokkrum. Ég hafnaði því vegna þeirra anna sem fylgja því að vera heimsþekkt söngkona, hey það eru ekki allir svo heppnir að fá að taka við að snilla er Bono heitir . Ég ætla að leyfa mér að gerast svo djörf að tileinka mér sama vörumerki og hann og stunda það stíft og galið að bera sólgleraugu hvert sem ég kem, þannig bensín- stöðvar búið ykkur undir GRÓÐA!!…

Vegna fyrirhugaðar tónleikaferðar minnar til Bretlands í apríl verður páskafríið mitt fremur stressandi og tímafrekt þar sem ég þarf að mæta í hin og þessi boð, m.a. hjá henni Elísubetu vinkonu minni, en hún ber þann eftirsótta titil að vera drotting, svona fyrir þá sem vissu það ekki . Alveg ágætt að eyða sunnudögum með henni og drekka te undir berum himni. Svo er víst búið að tilefna mig til óskarsverðlaunana eftir frammistöðu mína í verkinu BIG MAMA 2!

Svo um næstu helgi er leikrit nokkuð á Stokkseyri … en þar er á ferð söngleikur með Bítlaþema ( verð að mæta þar sem ég er náskyld einhverjum John Lennon?? )…Auðvitað læt ég sjá mitt góða smetti þar inni og ætla að ég að taka nokkra valinkunna góðkunningja mína með t.d. Pitt og frú, Beckham hjónin, Jennifer Aniston (verð samt að passa að hún og Pitt fari ekki að slást þannig ég býð SPIEDERMAN með til að passa það) einng koma þessar litu gellur þarna sem elta mann á röndum Hillary og Lindsay nokkur Lohan (eru að gera mig brjálaða! ), og auðvitað kemur Leonardo með, en ég er enn að reyna að bæta upp höfnunina sem hann fékk þegar ég sagði nei við hlutverkinu, það var ekkert illa meint sko en hann tók því eitthvað illa… U2 á bara allann minn tíma núna.

Ég er búin að biðja lífverðina mína að plögga okkur góðum sætum og verðum við víst á fremsta bekk, sem ég tel vera nokkuð gott. JUKKA SVENSEN súperdansari með meiru er að dansa í verkinu, en hún á langan feril að baki sem dansari, en hún hefur meðal annars dansað með íslenska dansflokknum sem og hinum konunglega-balletnum í París. Einnig hefur hún komið fram í mörum heimsþekktum myndum t.d. GREASE, FLASH DANCE OFL.. og svo verið dansari hjá hinum og þessum boy-böndum. En allavega endilega að koma og sjáið ædolin ykkar sem og ÞETTA MEISTARASTYKKI sem ætlaði að dansa í en gat ekki vegna tónleika-undirbúnings

Vegna allra þeirra anna sem eru farmundan gáfu allir mínu ágætu kennarar mér frí til að sinna skyldum mínum.. en ég fékk það aðeins í gegn ef ég myndi gefa þeim eiginhandaráritun. Að sjálfsögðu fengu þeir vilja sínum framgegnt enda búnir að fræða mig um hin ýmsu málefni. Ekki allir jafnheppnir og ég að vita allt um Halla Lax, Freud kallinn og Napóleon.


En kæra dagbók við sjámust þá bara þá.. var að fá símtal frá Hvíta – húsinu en það var einhver Buch??!! sem var að biðja mig um að leysa sig af sem forseti en allavega verð að þjóta einkaþotan bíður

NB - skrifa bara síðar og minni á ef að þú sem kemst í dagbókina mína og ert að lesa þetta núna þá minni ég þig á að fylgjast með í Séð og heyrt, DV, Hér og nú, því ef þú skilur ekki enskuna er um að gera að skoða þessi ágætu rit sem eru hér heima, annars geturðu líka gluggað í þessu erlendu eða farið á google.com og skrifað mitt fagra nafn þar og fengið allra nýjustu fréttir… en þarf að þjóta þotan bíður… OG SVONA AÐ SEGJA ÞÉR ÞA MÁTTIRÐU EKKI LESA DAGBÓKINA ÞETTA ERU EINKAMÁL!

Kv, Bigga Jóns… hvað er annars málið með þessa Biggu Hau sem er alltaf að stela frægðinni minni.. óþolandi gella!
- Er gaman af biluðu bulli? Skoppaðu þá eins og fiskur í algjöru rugli!!