þetta er grein hún er um misheppnaða manneskju…mig ;) Nokkrar sögur muna koma um svona dettidæmi og byrjum nú.

Einu sinni var ég að labba með stjupsystur minni í kringlunni og ég var bara að tala við hana og svona bara á tjillinu. Allt í einu öskrar hún eiginlega, passaðu þig. Ég lít framfyrir mig, sé eitthvað svart og búmm, klessi á nokkuð hávaxna manneskju, lít upp og sé þá að manneskjan sem ég klessti á var Eiður Smári(sætur náungi) Mér bregðu svo annskoti mikið að ég segi(hann öruglega sá eini sem heyrði það) SJITT og labba eins hratt og ég get í burtu eeeeeldrauð í framan og klessi á súlu.

(kannski ekki dettisaga en þetta var fyndið)
Ég var í skólanum(8.bekku) með vinkonu minni og við stöndum bara í stiganum að tala saman þegar gaur í 10.bekk labbar framhjá(einn af þessum svona popular group) og þá finnum við þessa geeeðveiku rakspíralykt. Kem ég þá svona MJÖG hátt sniff sniff, VOOOÓ! Það voru sko ekki fáir sem að heyrðu þetta ;)

Allir hafa heyrt söguna þegar ég datt úr buxunum og stóð á brókinni á ganginum svo ég sleppi henni.

Jæja svo var ég að sækja pening út í bíl og sit í framsætinu að telja peninginn og sný mér við til að fara út(hurðinn opinn) og renn út úr bílnum og dett beint á rassgatið, um leið heyrðist svona hljóð ooooh, svoldið kynferðislegt…aðeins 2 vitni, sem betur fer.

Hitti gaur sem heitir Guðjón (sama og pabbi) ég segi við hann: Heeey þú ert gaurinn sem heitir það sama og pabbi, hvað heitiru aftur?


Síðan sagði ég einu sinni: Hvar er Jenna, ég hef ekki séð hana í klukkutíma eða eitthvað (þess má geta að ég hélt á henni)

Síðan var ég einu sinni á skautum, smá keðjuverkun sko, ég klessti á gaur, datt ekki, klessti á annan datt ekki og annan en datt ekki. Síðan stoppaði ég til að monta mig og datt.(Have to be there moment)

Síðan á jólunum var ég að setja pakka undir tréð og setti hnéð oná nálapúða fullan af nálum sem stungust allar inn í hnéð á mér(fæ enn gæsahúð) þurfti að draga allar úr, síðan fór ég framm og rak hendinna í sjóðandi heitt straujárn…

Síðasta sagan

Var á húsavíkurmótinu sumarið 05, var að labba upp stiga þegar vinkona mín kallaði á mig og ég sneri við, niðri voru..Ka-stelpur, Ka-strákar og Hauka-stelpur, ég missteig mig datt beint á rassinn og allir bara eitthvað sjitt er allt í lagi(þá stelpurnar, strákarnir voru í hláturkasti) ég var náttúrulega með mitt stolt og bara jájá allt í lagi sko, settist við hliðina á vinkonu minni og hvíslaði NEI!!
Þess má geta að ég fékk riiiiiisa svartan marblett á rassin :S
Voulez-vous coucher avec moi, ce soir?