Greinarlegasta grein!
Í dag datt honum mér í hug að fara að greinast um eitthvað en vissi ekki um hvað hann ætlaði að greinast svo ég greinast bara og greinast um það sem mér dettur í hug og kemur út úr mér væntanlega sem steypa í greininni sem verður hér neðar á síðunni með einhverju greinarlegu sem sannar að þetta er grein en ekki trjágrein nér fiskur heldur grein, greinarlegasta grein sem ég hef greinast um.


Flott byrjun?


Alla veganna er þessi jólaundirbúningur sem á að vera hjá öllum ekki byrjaður hjá mér. Ég sit hér fyrir framan skjáinn og skrifa þetta meðan ég horfi út um gluggann og bíð eftir því að Osama Bin Laden birtist allt í einu fyrir framan mig og byrji að dansa samba en ekkert gerist nema að eitt af hundrað daglegum símtölum hennar mömmu byrjar. Systur mínar eru annaðhvort að sippa eða lemja hvora aðra meðan ég greinast hér um ekki neitt. Þessi steypa kemur bara út úr mér, ég treð lífi mínu upp á ykkur án þess þið getið gert neitt. En mér er sama. Svo lengi sem svín fljúga og kindur sigla skipum þá er mér sama. Ég treð þessu upp á ykkur og þið getið ekki sagt orð. Ég tala og tala og tala við sjálfan mig meðan ég greinast og treð orðunum í greinina. Ég ætlast til þess að bækurnar nái í síróp og fari að synda í því, boltinn byrji að skoppa að sjálfu sér því sokkurinn minn segir að tómatsósan sé græn vegna þess að loftræstingin fór í samúðarverkfall því brauðristin fékk ekki að kyssa gaffalinn minn. En hvað veit ég, tólf ára bóndasonur sem þarf að fara út í fjós því Binni Hlöðutúni ætlar að saga dyrnar inn í hlöðu í brotajárn. Þetta skrifa ég í gær, 20. desember en byrja að skrifa aftur í dag 21. desember eftir að ég fór að kaupa júletre með familíunni. En svo fór ég að pæla í tilgangi þessarar greinar, ég held hún hafi meiri tilgang en *pot* grein Nugnar en sé bara drasl miðað við álit supernannys á sorpurunum án þess að ég hafi neitt vit á þessu. En ég skrifa og skrifa inn í Word á tölvunni hans af míns. Gaman, gaman og allt í einu finnst mér að ég þurfi útrás…



akdlargoiaejrgæosreghsoeirghaerægoiaerægoihsdrægosjdgæoaihrgæaoeghoawrehifgaeporhgaworeghargæohaeiorgesæarghæaoergæaiðaegæoaeghræaeg



Útrás komin svo ég get byrjað að drekkja ykkur í orðum aftur…. eða hætta og hleypa ykkur að… gjörið svo vel… kastið skít að vild!


JÓli flórsleikir kveður að sinni!

Gleðileg Jól!