…! Þetta fyrsta grein mín á huga, þ.e.a.s. ef hún verður samþykkt. *horfi rannsakandi á stjórnendurnar* Allright, here we go:

Ehh, þarf aðeins að trufla aftur, þetta er grein um sorparana –ég ætla að lýsa útliti og persónuleika þeirra sem ég hef hitt t.d. á samkomum, ætla líka að taka þá sem eru hættir :). En þið fyrirgefið mér ef ég gleymt einhverjum o.O. *En ég fer eftir stafrófsröð einhverjir halda að þetta sé vinsældar listi.

—–
aanita eða Aníta.
Híhí, hún kom á síðustu samkomu og mér datt ekki í hug hver þetta gat verið. Ég hélt kannski hún hefði barasta ráfað á vitlausa samkomu ^^. En svo eftir smá feimnis gláp í augu þá spurði ég hana og hún sagði Aníta. Ég bara jaaaaá.. *aftur vandræðaleg þögn* Útlitið já, frekar sítt ljóst hár, minni en ég (sem kemur víst ekki á óvart lengur…) bara pretty normal 13 ára stelpa hehe, maður gat alveg spjallað við hana þótt ég gerði það ekki mikið. En ég hef samt aldrei talað við hana á msn…

betayr eða Elísabet.
Hmmm, það er frekar langt síðan ég sá hana, það var á minni fyrstu samkomu í kringlunni. Ég var búin að glápa á hana frekar lengi og pæla í hver þetta væri, svo spurði ég hana og hún sagði það. Jább, hún er skemmtileg ^^, opin og já. Já hún er með dökkt hár en var samt eitthvað pirruð útí það á sammó… en maður fær að vita allt um það á folk.is/strangeer eðahttp://www.blog.central.is/strangeer. (allt of langt síðan síðast pff..)..svo er hún 14 ára, ekki satt? Og er kannski í einhverju sambandi við sorpara hér :Þ. En ég hef ekki msn-ið hennar…

dagny22 eða Dagný.
Ég var bara að hitta hana á síðustu samkundu, þegar við vorum rekin úr perlunni stóð hún fyrir utan með sakleysissvip og við bentum á hana eins og frumbyggjar og sögðumst vita hver hún væri. Þá breyttist svipurinn í “are you freaking maniacs O.O”. Heh, ég sagði frekar lítið við hana (kannski smá byrjanda feimni eh?) en hún var samt bara mest með Benna. Ég man ekki alveg hvað gerðist svo, hún bara hvarf af samkomunni! Uu já, hún hefur dökkt hár… sem u.m.þ. bil allt í einu 75.000 Íslendingar eru með..*öfund*, minni en ég ^^ og er.. æji ég er svo léleg í að lýsa útliti! En hún er venjulegur 15 ára unglingur, jarr, og ég tala stundum við hana á msn, ekki óskemmtilegt það ^^.

Deviton eða Björn.
Úff, ég veit ekki hvar ég á að byrja, reyndar hefur hann aldrei farið á samkundur en ég þekki hann bara úr skólanum. Well, hann er kallaður Bölló, mér fannst það stórfurðulegt þegar ég heyrði það fyrst en núna mjög eðlilegt. Sko, hann eiginlega hunsar mig alveg en hann getur verið mjög fyndinn. T.d. í heimilisfræði þá er erfitt að halda andlitinu þegar maður er að fylgjast með honum og vinum hans, eins og þegar hann var að skræla epli þá missti hann það 10 sinnum á gólfið og vinir hans hótuðu að berja hann ef hann hætti þessu ekki og þá auðvitað missti hann eplið í uppvaskið :’) og dó ég úr hlátri..með því að grenja bara. Svo þegar hann snýtti sér óviljandi í lófann…:Þ. Já, hann er hár og grannur, og samkvæmt mínum útreikningum er hann 2 m, samt smá ýkt og er með meðalsítt dökkt hár og gleraugu.

foxyme eða Lína.
She’s my bested friend ^^. Jebba, við eigum nákvæmlega ekkert sameiginlegt og ætli það sé ekki ástæðan fyrir að við séum vinkonur :Þ. Já það er erfitt að segja frá henni, jæja tökum einhver dæmi. Hún hótar öllum strákunum í bekknum að berja þá ef þeir segja eitthvað (hún er greinilega svona viðkvæm ^^), hún er alltaf með þetta “#$%” meik með sér, maður getur ekki grínast með alla hluti um hana :Þ og …*eitthver setning sem lætur hana fara hjá sér því mér dettur ekkert annað í hug*. Og hún hefur ljóst hár, of mikið meik og næstum jafn há og ég. Msn?

Gelgjan eða Hildur.
Víness, minn fyrrverandi uppáhalds fréttamaður ^^. Ahh já, á samkomum er hún alltaf svaka hyper, kann að tala við 14 ára glegjurnar á sorpinu (sem er ótrúlegur hæfileiki að mínu mati), og já, það er gaman að spjalla við hana, eðal sorpara-blóð á bílprófsaldri ^^ sem þýðir að hún gæti skutlað okkur útum allt, *is eyeing on Benna now who’s 18*. Og ég held barasta að hún hafi mætt á allar samkomur! En hún hefur ekki mikinn tíma fyrir sorpið sjálft, ég eigi vita hvers vegna :/ …and the útlit is: *trommur* hún er með meðalsítt ljóst hár, minni en ég ^^, og er í sínum 17 ára aldurs fötum, ahh… (þú færð smáköku ef þú skildir þetta). Tala lítið við hana á msn though :/…

—–
Jeij! Þá er 1 hluti af 3 búinn, með sérstöku leyfi hjá Leifi (ahahaha orðagrín) þá get ég sent 3 hluta, sjibbí. Svoo.. hvernig fannst ykkur?