Í Kindereggi nokkru fædddist bróðir goðsagnarinnar Luigi.

Urðu þær bræður strax vinir miklir er þeir hittust í frímínútum skólans.

Var hann nefndur HULK vegna massans og græna litsins :D

Hæfileiki HULK, fyrir utan það að hafa það orð á sér að vera mjög mikið krútt, þá færist andlitið og afturendinn á honum út og inn til skiptis þegar hann labbar.
Að sögn Huga hefur HULK sinnt hlutverki sínu vel sem arftaki og bróðir Luigi og aldrei orðið honum til skammar.

Nú verður sagt frá mjög viðburðaríkum degi í lífi HULK :

Í dag í skólanum þá voru Hugi og Viggi minnir mig að tala um Luigi við einhverjar stelpur í matarhléinu. Þá datt mér í hug að sýna þeim HULK.

Ein stelpan, og reyndar hinar líka en hún samt sérstaklega, tók ástfóstri við HULK og var e-ð að leika sér með hann og allt í fína en viti menn…….HULK hafði þau áhrif á hana að hún vildi ekki skila honum og hún tók hann og byrjaði að kalla HULK, LÚSÍ !!!!

Ég náði þá í Huga og við fórum að ná í hann en þá beittu stelpurnar bellibrögðum eins og að láta HULK á bak við sig og inná sig.
Þá gáfumst við upp og náðum í liðsauka sem var Viggi aðallega.
Þá náðum við henni og reyndum að ná HULK en hún slapp svo inná klósett. Þaðan kom hún með fullan munninn af vatni og ætlaði að skyrpa því á okkur en Vigga tókst að láta það koma út um munninn á henni og beint á gólfið. Þá hljóp hún inní íslenskutíma til að fylla munninn aftur en það vatn endaði í maganum hennar.

Svo í íslenskutíma fór kennarinn fram og hófst stríðið aftur og var barist til síðasta blóðdropa seem endaði með því að HULK datt á gólfið og Maggi náði honum og hann var færður mér.

ENDIR

Þetta var sönn saga um hve HULK er vinsæll í bekknum meðal sumra.

Allt var birt með leyfi Huga, eiganda Luigi :D

P.s. þetta er fyrsta greinin mín þannig að ég veit ekki hvort þetta telst vel gert eður ei :)
You slime