Sorparaljóð Ég ætlaði bara að leika mér að skrifa nokkur sorparaljóð og setti þau hingað

Þetta ljóð samdi ég eftir söguna hans mizzeeh um riddarana

Rekur Leif í rogastans
þegar Hugi byrjar
dansar hann sinn grófa dans
og Dagný sönginn kyrjar

Og svo þetta líka

Supernanny Snape elskar
Kíkir oft á sorpið
Bækur hennar mjög velskar
Komnar út í þorpið

Og meira

vansi ekki mjög gamall
Leitar að því rétta
Vansi er ei einsamall
Margra vina flétta

Ég kem mér á óvart

Meaniac heitir Benni
Líkar vel við hann
Vona að hann mér kenni
Allt um þennann mann

Nesi13 á Bifröst býr
Supermann þar líka
Mjólka þar svo margar kýr
Þekki enga slíka

Ég byrjaði bara að leika mér en er kominn með heilann ljóðaflokk

Moonchild hlustar Maiden á
Syngur og headbangar
Hoppar líka oft á ská
Marga hitt’ann langar

Raiden, hann er hérna nú
Les mitt ljóð og hlær
Sparkar í hann nesa kú
Fær hann kannski flær?

Eitt enn

Gelgjan engin gelgja er
Talar þó og hoppar
Íslands eini orðaher
Dettur hún og skoppar

hvernig finnst þér þetta?