Mig hefur lengi langað til þess að rita á blað eitthvað um bróðir minn. Ekki af því að hann sé eitthvað leiðinlegur eða idolið mitt. Hann er bara svona …uuu….æjj.. orðum það þannig að hann er “sérstakur.”

Hann er með svo brenglaðan húmor að það er alveg ótrúlegt hvað honum dettur í hug, og hvað hann getur hlegið af.

***************************************************************

Sem dæmi má nefna þá er hann með..eða var með mömmu brandara á heilanum. Og ég er systir hans..en það stoppaði hann samt ekkert!

Ég: Geturu aðeins hjálpað þér
Hann: mammaín hjálpar þér.
Ég: ohh þú ert svo pirrandi.
Hann: mammaín er pirrandi (mamma stóð fyrir aftan hann)

…ég man þetta ekki alveg orðrétt..en þetta var svipað :P

***************************************************************

Við eigum alltaf svo elskuleg samtöl…

Ég var að hjálpa honum með eitthvað..og vínkona mín var frammi á gangi að bíða eftir mér á meðan.

Og ég sagði eitthvað sem var greinilega mjög hallærislegt að hans mati :P

Hann: haha þú ert svo mikið gelgja!
Ég: haha ég er ekki gelgja…þú ert bara nörd!
Hann: mammaín er…(hættir við)

..hehe hann hafði allavega lært að sumt segir maður ekki um móður sína…sérstaklega þegar það er annað fólk að hlusta ! ;)

***************************************************************

Ég var líka lengi búin að biðja hann um að share-a tónlistinni sinni þannig að ég gæti dregið hana yfir á mína tölvu…

Og ég var OFT búin að biðja hann um það en svarið sem ég fékk var alltaf: Seinna…eða…ég er upptekinn!

En einn daginn var það ekki svarið !

Ég: æjj plííís nenniru að share-a tónlistinni??
Hann: ef þú finnur cdkey fyrir quake 4!
Ég: haaa??
Hann: ég skal gera það ef þú reddar mér cdkey fyrir quake 4
Ég: og það er? ….æjj skiptir ekki…

Ég dreif mig í tölvuna og inná msn….og vitið hvað?? Ég reddaði þessu!

…en nei ! Hann virkaði ekki! Þannig að hann ætlaði ekki að share-a þessu fyrir mig.

En hann gerði það samt að lokum :) ..af því að ég sagði að ég hefði bara átt að redda cdkey…hann minntist ekkert á að hann ætti að virka !

***************************************************************

Svo það sem honum dettur í hug er alveg furðulegt :)…

Hann var í rútu með fullt af útlendingum (Finnum..minnir mig) og einhverjum vinum sínum. Og hann og einn vinur hans tóku uppá því að í hvert skipti sem að rútan ók yfir kindabrú (æjj vitiði ekki hvað ég er að tala um?) þá öskruðu þeir BINGO!

Og í lok ferðarinnar þá voru allir í rútunni farnir að taka undir ! ..sama þótt að þeir hefðu ekki hugmynd um af hverju þeir væru að þessu.

..ég mæli með þessu ;) ..þetta er mjög skemmtilegt ! haha..


***************************************************************


..ég man ekki fleirra :P