jæja…ég er að hugsa um að skella einni sögu…kem kannski með framhald ef ykkur líkar hún….enjoy:

Þessi saga gerist í litlu þorpi sem kallast Sorpið. Það er mið nótt og allir eru farnir að sofa, eða hvað? Svo virðist sem að einhverjir sorpsbúar séu vakandi. Í þröngu húsasundi er Mizzeeh aleinn á gangi. Alltí einu stekkur vansi fram og öskrar Baaaaaaaa. Mizzeeh bregður svo rosalega að hann stekkur upp á svalir sem voru fyrir ofan. Þá kemur Vettlingurinn út og fer að skamma Mizzeeh fyrir að vera með læti. Mizzeeh fer í fýlu og flýgur í burtu. vansi felur sig aftur og bíður eftir næsta fórnalambi. Í næstu götu eru Supernanny, Honeynut og Kyra að reykja hass saman. Þær eru komnar í mikla vímu og eru farnar að sjá fljúgandi bleika fíla út um allt. Hey, þessi lítur alveg út eins og MadClaw segir Honeynut og hlær voðalega hátt. Svo fara þær allar heim til sín að sofa. Á meðan þessu öllu stóð fraus vansi fastur. vansi kallar á hjálp og þá gengur HerraFullkominn framhjá. Hjálp, ég er frosinn fastur segir Vansi. Pff… Þú ert greinilega ekki eins fullkominn og ég svarar HerraFullkominn og gengur í burtu en HerraFullkominn klessir óvart á ljósastaur og rotast. Á meðan kallar vansi eins hátt og hann getur á hjálp en enginn heyrir. Á meðan allt þetta gerðist voru betyr og allidude að rölta um hverfið. Allt í einu fellur allidude um einhvað. Hvað í bé******* er þetta?? öskrar allidude. Þetta er HerraFullkominn, hann er rotaður svarar betayr. Hann er nú ekki ýkja fullkominn núna segir allidude háðslega. Við verðum að hjálpa honum segir betayr. Ókeii svarar allidude fýldur og þau drösla HerraFullkomnum heim til betayr. Víkjum nú sögunni til vansa. vansi er orðinn mjög vonlítill að einhver hjálpi honum. En þegar vansi er alveg að sofna heyrir hann mjög svo falskan söng. Sér hann ekki Mizzeeh koma fljúgandi og syngjandi franska þjóðsönginn. vansi kallar og kallar á Mizzeeh og Mizzeh flýgur til hans. Ég fraus fastur, viltu hjálpa mér að losna? spyr vansi. Ég veit það nú ekki, þú varst að stríða mér áðan svarar Mizzeeh. Ég skal gefa þér kókosbollu með súkkulaðirjóma ef þú hjálpar mér! segir vansi. Allt í lagi svarar Mizzeeh og sleikir útum. Mizzeeh leysir vansa með ofurkröftum sínum og svo flýgur Mizzeeh með vansa í burtu. Þegar Mizzeeh flýgur yfir þorpið sér hann einhverja mannveru standandi í einni hliðargötunni. Mizzeeh hugsar ekkert um það og flýgur bara áfram. Manneskjan sem stendur þarna í hliðargötunni er Gelgjan að bíða eftir leynilegum elskhuga sínum. Allt í einu fellur stór skuggi á hana og djúp rödd segir: Loksins finn ég þig, nú kemur þú með mér. Hver ertu? spyr Gelgjan. En hún fær ekkert svar, í staðinn er henni lyft upp og keflað hana. Svo er sprautað einhverju í hana og hún fellur í djúpan svefn.

Hvað gerist? Hver er dularfulli maðurinn sem rændi Gelgjunni? Er MadClaw búinn að breytast í bleikann fíl?

stay tuned…