Þetta er dáldið rugluð saga. Einhvað verkefni í skólanum þar sem við áttum að gera hryllingsögu og við máttum taka úr atriði úr myndum eða e-ð og þetta er víst sagan mín:D
Enjoy

Ég vaknaði og sá ekki neitt. En þá opnaði ég augun og sá að ég var í einhverju baðherbergi. Ég reyndi að hreyfa mig en ekkert gerðist.
Ég fann allt í einu fyrir rosalegum kulda og þá fattaði ég að ég lá ofan í baðkari,
sem var fullt af ísklökum, sem voru blóðugir.
Ég fann fyrir sting rétt hjá maganum og þreyfaði aðeins þar, þá fann ég einhvað blautt. Það var blóð. Blóð úr mér. Ég leit niður og sá að það var skurður sem var ekki saumaður saman og vissi að einhverju líffæri hafði verið tekið. Ég reyndi að hreyfa mig aftur en ekkert gerðist heldur.Ég reyndi það aftur og þá gerðist það.
Maður kom inni í herbergið og fór að þvo sér um hendurnar.Ég hugsaði með mér ,,Hver í helv…..?" og ætlaði að fara að segja það en gat ekki talað, tungan mín hafði verið skorin af. Ég reyndi að öskra en ekkert heyrðist. Ég reyndi það aftur en þá leit maðurinn á mig. Hann horfi á mig kveljast og brosti. Hann kom að mér og tók hönd mína. Hann dró upp skæri, mjög beitt skæri, og klippti einn og einn fingur í einu. Þá datt ég út. Þegar ég vaknaði fann ég aftur fyrir sársauka, meira en áður. Barmur minn hafði verið skorinn í burt ásamt öðru. Maðurinn gekk inn. Hann var með hárkollu og var búinn að mála sig. Hann hafði víst tekið barminn minn til að klæða sig í hann, ég sá það. Ég sá að hann hafði
gert þetta áður, því hann var eins og hann væri í kvennmanslíkama, sem höfðu víst verið
partar úr öðrum konum. Þá leit hann á mig tók upp hníf og skar mig á háls…

FIN