Ætla að lýsa í stuttu máli samkominni í gær =)

Við hittumst öll kl 7 [ég og gelgjan komum aðeins of seint =<...strætóvesen] á american style. Þurftum að bíða frekar lengi eftir borði, en síðan losnaði eitt stórt og við tróðum okkur öll á það =D. Sá að sumir pöntuðu sér bara franskar og aðrir hamborgara…en því að ég er svo spes þá þurfti ég að fá mér piparsteik, sem ÁTTI að vera með broskalli gerðann úr hamboragarasósu ofaná…en NEEEIIII hún gleymdi því…piff=<. MadClaw sentist til að ná í kókið okkar SKRÍÐANDI á gólfinu, haha, þvílík snilld!

Við hringdum í supernanny þegar við borum að borða =D. leifa henni að vera með =P.

Síðan pikkuðum við í einhverja konu sem var á american style um að taka hópmynd af öllum hehe, hún fór uppá stól og alles, tók einhverjar 3-4 myndir…fáið að sjá þær bráðum.

Þegar við vorum komin út þá fórum við in í 11-11, madclaw keypti sér Hveitipoka…ég keypti sleikjóa handa öllum sorpurum (h). Fyrir utan 11-11 var síðan mikill slagur um hveitið…allir hellandi á alla haha =D Einvher kall var í glugganum heima hjá sér og horfði á okkur eins og við værum hanski, þá fórum við eitthvert annað =D

Leið okkar leiddi í Perluna, en á leiðinni þangað voru mörg grouphug, KYSSERÍ!….og við fengum að sjá Luigi! hans Huga! =D. Það ver einhver kjelling í bíl sem stoppaði á gatnamótum til að tala við okkur…hún leit allveg eins út eins og Silvía nótt…þúst sko alle!

Allavega, á leiðinni í perluna stoppuðum við í select og Sumir keytu sér svona sjálflýsandi eyrnalokka og þannig =>. Sem síðar endaði með því að Foxyme var að brjóta þetta og klína sjálflýsandi gumsi framaní alla =D

Perlan. Við fórum inn, og fórum bara beint upp á efstu hæð…þar var bara veisla, stoppuðum það aðeins en ákváðum að fara bara niður..OG SKOÐA GOSBRUNNINN…hann að geðveikt flottur, ekkert smá stórt gos =D.

Síðan héngum við þarna inni í perlunni í smá tíma..í hitanum, en síðan fóru nokkrar af stelpunum =<…það var knúsast og þessháttar :'(

Eftir þetta þá vorum við fá eftir, fengum far heim (H), ég kallaði gaurinn sem var að taka á móti gestunum retard því að hann var að reka okkur út…

Fjallaði um þetta bara í stuttu máli, afsakið ef ég sleppti einhverju sem þið vilduð hafa, en þið getið bara skrifað það í comment hérna =D

Takk öll fyrir að mæta á þessa samkomu, ætlum að plana svona fljótlega aftur => og þið sem ekki mættuð, um að gera að reyna að mæta á næstu =D

cya :*