Meira nammi! Meira nammi :D

Litla frænka mín kom hlaupandi til ömmu og sagði ‘’amma! Ég er með kjúklingaskinn’’!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Hún var að meina gæsahúð :’D

**************************************************

Þetta er kannski ekkert svo fyndið, en…

Nágranni minn bauð okkur í mat (geggjað góður matur indeed) og eftir matinn fékk hann sér hvítvín! Þá segir hann bróðir minn ‘’ertu fyllibylla?’’

**************************************************

Ég var að leita af pening fyrir nesti í skólann einn morgun og ég fann loks eitthvað klink, en skildi restina alltaf eftir á borðinu, þá segir brói! ‘’ERTU RUGLUÐ? Maður skilur ekki pening eftir á klámbekk!!!’’

Nei annars…þetta gerðist ekki, þetta er samt týpískt hann bróðir minn :P

**************************************************

Frændi nágranna míns var að koma í heimsókn (hann og brói eru góðir vinir) og þegar hann kom sagði hann við mömmu ‘’veistu hver er dáinn?’’ mamma fékk alveg sjokk og hélt að einhver nákominn eða einhver sem hún þekkti hafi verið að deyja ‘’hver’’? ………….’’páfinn’’!

Hann var ekkert smá stoltur að vita þetta :P

**************************************************

Bróðir minn oog vinur hans komu til mín og sögðu ‘’hann ****** er búinn að fá kalkún!’’ og ég bara, ‘’æjj strákar hættiði þessu’’ ‘’hann er VÍST búinn að fá kalkún!!!’’ ‘’strákar, fólk fer ekki bara að kaupir kalkún’’ ‘’víst! Hann’’ ‘’jæja sýniði mér þá þennan kalkún’’ ‘’ok komdu’’ og ég elti þá heim til ******* svo fara þeir fyrir framan eitthvað hús með lítilli lúgu og hann opnar, ekkert sést það var svo dimmt, svo ég tók símann minn og kveikti á vasaljósinu á honum og lísti þangað inn, og hvað sá ég? Önd…

Hvernig í fjandanum duttu þeim kalkúnn í hug? :S