Hérna eru nokkrar fyndnar sögur sem ég hef orðið vitni að eða heyrt hjá öðrum. Þær tengjast semsagt allar kennurum í skólanum mínum.

=====================

Íslenskukennarinn

Það er semsagt einn strákur í bekknum mínum sem er alltaf að skjóta á íslenskukennarann og kennarinn skýtur alltaf til baka og þessi skot geta verið mjööööög fyndinn.

Dæmi:
Strákur(dregur upp súkkulaði og býtur í það): ummmmm þreföld fullnægjing.

Kennari: piff sumir hafa ekki fengið það

Hér er annað:

Strákurinn var með eitthver læti og þá heyrðist í kennaranum: Ef ég hefði byssuleifi myndi ég skjóta hann.


Vil taka það framm að þessi skot eru djók í einu og öllu.

===============================

Enskukennarinn

Já það gerðist eitt sinn í ensku að kennarinn var að seigja frá því að geitungur hafi komið upp miklu uppnámi í stofunni í fyrsta tíma en í því augnabliki flýgur eitt stykki inn um gluggan sem nýbúið var að opna. Allir í stofuni þustu út í horn með kennaranum. Ég var eina manneskjan sem hafði ekki hlaupið af stað og auðvitað kom geitungurinn og settist á mig, þá fékk ég eitt af mínum frægu asmaköstum en á meðan kallaði enskukennarinn á mig. Vertu alveg kyrr, andaðu, andaðu, þú stendur þig mjög vel, ég gæti þetta ekki. Vinkona mín lýsti því seinna fyrir mér að það væri eins og ég væri að fæða og kennarinn væri pabbinn ;)
En þegar geitungnum þóknaðist loksins að drullast af mér flaug hann beint í hornið til hinna krakkanna og þau hlupu öll öskrandi í hornið til mín, en þá tók einn strákur af skarið, tók enskubókinna sína og réðst á geitunginn, útkoman á því var rifinn enskubók og kraminn geitungur.

Einu sinni vorum við að læra og höfðum pínu hátt þegar enskukennarinn trylltist allt í einu og hélt 5 mínútna fyrirlestur á háa C-inu. Skyndilega hætti hún og gekk að nemenda sem hún ætlaði að hjálpa og sagði sínum blíðasta rómi: Já þú gerir þetta bara svona…….allur bekkurinn var eldrauður í framan við að reyna að halda niður í sér hlátrinum.

=======================

Hinn íslenskukennarinn

Eitt sinn var hann að koma labbandi með kassa í fanginu, hann var að fara inn í stofuna þegar hurðinn losnaði allt í einu af hjörunum og datt ofan á hann.
Þetta er eitt það fyndnasta sem ég hef séð :D:D:D:D

======================

Stærðfræðikennarinn

Þessu varð ég ekki vitni af en hún átti eitthverntíman að hafa reynt að reiðast og lamið í borðið,útkoman úr því var áts!

======================

Dönskukennarinn

Einu sinni vorum við að fara í bíó í skólanum og kennarinn sagði við okkur daginn áður enn við fórum:

Kennari: Ef það verður eitthvað rusl eftir okkur í salnum förum við aldrei í bíó aftur.

Krakkar: Hvað megum við þá koma með nammi eða?

Kennari: Ég get nú ekki leyft ykkur það.

Krakkar: Æji plís?!

Kennari: Það sem ég veit ekki særir mig ekki.






Það eru nokkrar fleiri sögur en það væri kannski gaman að setja það í fleiri greinar ef þessi verður samþykkt :D
Voulez-vous coucher avec moi, ce soir?