Ég er að verða uppiskroppa með nammi! Þið eruð búin að borða það allt! :P

…………………………………………..

Heimilisfræðikennarinn minn svoleiðis klikkaðist í dag! Það var reyndar svolítið fyndið :P

Vinkona mín var að baka köku, og það átti að setja lyftiduft í hana, hún spurði kennarann havr það væri og kennarinn benti henni á það, svo fannst henni einhvernveginn eins og það ætti að vera matarsódi en ekki lyftiduft ‘'þetta er ekki það’' ‘'jú víst’' ‘'nei, ég var að gá að því’' ‘'jú’' ‘'nei, þetta er eitthvað annað’' svo tók kennarinn lyftiduftið og hvolfdi því útum gluggan :S ÞÁ NOTARU BARA EITTHVAÐ ANNAÐ!

Við stelpurnar göptum alveg! :S :P

…………………………………………..

Vinkona mín á vinkonu sem á systur (skilduði þetta? :S :P)

Köllum vinkonu mína Nínu
Vinkonu hennar Stínu
Og litlu systur hennar Bínu

Nína og Stína voru heima hjá Stínu, Stína spurði Bínu ‘'hvað heita krakkarnir á leikskólanum’'? ‘'Siggi, Rúna, Stéfan, Mía… Pabbi minn hann er með stóóóórt tippi’'

Guð hvað ég vorkenni pabba hennar að standa þarna og heyra 4 ára dóttur sína segja þetta við vinkonurnar ;'D Svo kom þetta abra allt í einu Hahahaha! Hvernig datt henni þetta svona allt í hug? :P

…………………………………………..

Svo ætla ég að koma með svona sögur sem eru ekki eins fyndnar, en bara svona skondnar, ekkert sem maður fer eitthvað endilega að hlæja upphátt að!

…………………………………………..

Einu sinni þegar ég var í kringum 3ja-4ra ára þá var ég í baði, mamma tók mig uppúr og rétti mér handklæði, en svo hringdi síminn, ég var soddan skvetta, og prílaði upp á klósettið og upp á vaskinn og þar var hvítt krem upp á þvottavél…ég tók kremið og fór fram, og klíndi kreminu út um mig alla, og stóra klessu á magan, svo hljóp ég til hundsins míns þar sem hann lá á grjónabeddanum sínum og lagðist við hliðina á honum og þóttist vera hundur :P

Á mynd af þessu og allt :S :P

…………………………………………..

Þegar ég var lítil þá HATAÐI ég bleikan!(ég er heldur ekki að fíla hann í dag) En hvað um það, ég lék mér hledur ekki með barbie eða dúkkur, nei nei, ég lék mér með skrímsli, ég átti fullt af skrímslum og risaeðlum, ég man eftir einu skrímsli sem var grænt með horn og gul augu, og kjálkinn var 4 sinnum lengri en efri vörin, en besta vinkona mín lék sér engöngu með barbie, ég tók saman minn skrímsla og risaeðlu her og trillaði yfir til hennar (hún bjó við hliðina á mér) og þá pössuðu skrímslin mín upp á barbie dúkkurnar hennar að action mennarnir hennar bróður hennar myndu ekki meiða hana…

…………………………………………..

Þegar ég var ennþá yngri var ég heima hjá ömmu og hún var með heitapott á pallinum, ég lék mér alltaf með bílana sem pabbi átti ofaná brúnni á pottinum, svo datt einn bíllinn ofaní, hoppaði ég þá ekki bara í öllum fötunum ofaní og sótti hann…

…………………………………………..

Ég vona að þið haldið ekki að ég sé eitthvað öfugsnúin :P :S