Ég hef aldrei séð þetta áður! Þetta var hræðilegt! Þetta var hálsfesti. En þetta var ekki venjuleg hálsfesti. Hún var úr silfri.

Og það var annað sem var ótrúlega merkilegt… hún var flækt! Ég er ekki að fokka í þér! Hún var virklega flækt, alveg eins og einhver hafi flækt hana af ásetningi. Úff

Ég tek hana upp og skoða hana og hugsa memmér “Já… hún er flækt” og ég legg hana frá mér. Lít svo út og sé að það er gaur að horfa á mig. Ég spyr hann vinsamlega hvað í fjandanum hann er að gera og veistu hvað hann sagði?

Hann sagði “Halló”

Ég leit á hann og spurði hann aftur nema núna með smá vælutóni og hann sagði að hann væri nýkominn úr vinnunni. Hann er nefnilega að vinna í verksmiðju sem býr til litla kassa sem eru svo sendir í hurðahúnaverksmiðujuna sem er einhvers staðar í Grímsnesi.

Ég náttúrulega býð honum inn, helli kaffi í Súpermann bollann minn og býð honum en hann segir “Nei, ég vil ekki kaffi, kaffi er viðbjóður og fyrst þú bauðst mér upp á kaffi, ætla ég að bíta skykki úr ísskápnum þínum”

Ég hrökk úr kút! Bíta stykki úr ísskápnum? Sjitt, ég verð að stoppa hann áður en hann gerir slíkt voðaverk. Svo ég tek mig til og sveifa fallega bollanum mínum með fallegri sveiflu og hann lendir akkúrat á óberminu sem ætlaði að smakka ísskápinn minn.

Það tók hann umþaðbil 20 mín að ranka við sér og fatta hvað hafi virkilega komið fyrir. Síðan stendur hann upp og spyr mig kurteislega hvort ég hefði eitthvað á móti því að segja honum næst frá því þegar hann ætlar að brjóta hluti á enninu á sér, því samkvæmt því sem hann sagði er betra að vita hvenær ennið kemst í návígi við hluti sem eru á hellings hraða.

Ég mótmæli því eigi, heldur býð ég honum upp á Homeblest og hann þakkar fyrir. Eigilega verður hann svo spenntur að hann klárar kexið á alveg 5 sek. sem er örugglega heimsmet.

Ég kíkti í heimsmetabókina og það stóð ekkert um kexát svo ég læddist aftan af honum og öskraði “Hei þú ert heimsmethafi” og hann varð svo glaður að hann bara dó.

Ég sagði bara hummmm, því ég eigilega vissi ekki hvað ég átti að segja því hei, ég hef aldrei lent í því að gaur dó fyrir framan mig! Hvað átti ég eigilega að gera? Syngja? Dansa? Jóðla? Hverjum er ekki sama? Ekki mér! hmmmm kannski komið út í eitthvað rugl… Hmmmm…. ó já… festin!

Ég labbaði upp að sifurhálsfestinni og greiddi úr flækjunni… THE END