Það er ALLTOF mikið af ógeðslega óþroskuðu fólki utan sorpsins. Hvað með það þó að einhver hati uppáhaldshljómsveitina þína? Hvað með það að einhver hati átrúnaðargoðið þitt?
Hvað með það þó einhverjum finnist kók betra en pepsi? Hvað með það að einhver sé hommi?
Hvað með það að fólk á huga stofni félög?
Big díl! Ég er orðinn svo pirraður á svona fólki!
Ég er venjulega rólegur á huga og svara öllu, móðgunum og ofantöldu. Með skoðun minni og jafnvel brosköllum, ég skil ekki hvers vegna í andskotanum fólk þarf að fara að æsa sig geðveikt mikið og tala um að einhver sé þroskaheftur þó að hann fíli ekki uppáhaldshljómsveitina manns?
Til dæmis Dave Mustaine er átrúnaðargoðið mitt og hann fær mörg skot á sig hérna á huga, ekki fer ég að kalla einhvern fífl og segja honum að fokka sér og drepa sig, það er bara hans skoðun!
Og af hverju að vera að æsa sig yfir því að hugarar séu að stofna félög? Maður þarf ekkert að lesa allt frá þeim og um þau?

Hérna fer einn t.d að æsa sig út af félögunum og ég ræði aðeins við hann, dissa hann kannski smá en geri það allavega bara rólega með brosköllum og án blótsyrða. http://www.huga.is/forsida/threads.php?page=view&contentId=2434266


Hérna er einhver sem spyr WHO THE FUCK IS DIMEBAG DARREL og fær á sig skot frá hugara, nógu gróft til að vera eytt, kemur svo annar og segjir að Dimebag sökki og fær þetta svar “Hmmmmm hvernig ætti ég að drepa þig?” Ég meina , þetta er bara hans skoðun! http://www.huga.is/hljodfaeri/threads.php?page=view&contentId=2441709 í endan segjir stofnandi þráðsins svo “nei vissi ekki hver þetta var” Ókei kannski er hann að reyna að bjarga sér úr þessu en hvað ef hann vissi það ekki?
Ég vissi það ekki fyrr en hann dó til dæmis


Einnig í svona öðrum hverjum þræði, mynd, grein sem skuggi85 sendir inn fær hann á sig svar í líkingu við “Fokkin hommadjöfull!” Hérna til dæmis sendir hann inn reynslusögu um ferð sína á Nellys, lítið á svörin sem hann fær, bara helvítis fífl…http://www.huga.is/kynlif/threads.php?page=view&contentId=2317831 lesið sérstaklega vel svörin frá hugaranum sage, 5 svörm eytt og öll svörin hans eru eitthvað hommafóbíu.
Til dæmis sagði hann þetta “lemur pabbi þinn þig aldrei fyrir að vera svona mikill hommi” Hvað í andskotanum er að svona liði? Hann má alveg vera hommi? Svo byrja ég að vernda skugga og fæ þetta svar “common hr.fullkominn ekki vera að vernda skugga marr wtf?” Auðvitað verndar maður hann fyrir svona helvítis hommafóbíu hálfvitum sem eru að dissa hann út á kynhneigð sína!
Fólk hefur líka stundum bara alveg upp úr þurru, ekkert inn í umræðuni allt í einu sagt við hann
“Haltu bara kjafti og farðu og láttu ríða þér í rassgatið hommadjöfull!” Það á bara berja svona helvíti…

Einnig er alltaf verið að væla yfir okkur á sorpinu, það er ekki eins og þau þurfi að koma inn á sorpið og skoða allt?
Og ég veit ekki um mörg tilvik, veit reyndar ekki um nein þar sem við sorparar höfum farið út fyrir sorpið að dissa dólk og vera með leiðindi.

Hugi, er ógeðslega óþroskaður staður.

Reyni venjulega að vera ekki pirraður á huga en þetta lið á það fullkomnlega skilið.