HOLUR!

Inni í þessum holum, öllum þessum endalausu holum, fela sig oft margar litlar og sætar kengúrur!

Já, kengúrur eru ofan í þessum holum! Þú hefur máski rekist á þær þegar þú vappar um bæinn þinn, þú í gúddí fíling að labba og þá sérðu holu! En hefurðu prófað að fara ofan í þessar holur?

ÞAÐ HEF ÉG!

Og vitiði hvað ég sá þarna ofan í? Vitiði hvað?

Auðvitað vitiði það, ég sagði ykkur það áðan… Oh, bother…

En, fyrir ykkur fáu fattlausu, ég sá KENGÚRUR! That's right, kangarooz! Mini-útgáfur, líkt og með lunda og mörgæsir, en samt ekki! Fattiði? Ef ekki, þá sendi ég systkini ykkar í útlegð! (Ekki það að ég fatti það, en það verður þá bara að hafa það… Bæ tinnakristin!)

Ég spurði þær hvað í ósköpunum þær voru að gera þarna niðri, hvort það væri ekki dimmt, heitt, rakt, þurrt og kalt niðrí þessum skítugu holum í jörðinni!

Þær jánkuðu því, en sögðu að þeim væri sama! Þær ætla nefnilega að tryggja okkur betra líf með því að fylla uppí öll moldvörpugötin hér á Íslandi, svo að jörðin hrynji ekki undan okkur er við erum einhvers staðar á labbi!

Ég sagði þeim þá vinsamlega að því miður þá væru ekki moldvörpur á Íslandi svo að í rauninni væru þær bara að auka hættuna með sínum göngum, en eitthvað virtust þær taka illa í þetta hjá mér því þær köstuðu mér út á þessu stigi málsins.

Oh, well. Skiptir engu. Ég ætlaði bara að láta ykkur vita að Da Kangarooz eru að hjálpa okkur og eru frábærar!

Viva la Kangarooz!

Viva la Sorp!