Sorparar kærir.
Hér á eftir kemur stór játning frá mér sem mun eflaust setja ugg í hjörtu sum ykkar.
Ef þið vilijð ekki fá martraðir næstu nætur, jafnvel ár eða að eilífu þá skuluð þið hætta NÚNA
Þetta er jafnvel verri sannleikur en Pentagon greinin!





Ég er ekki fullkominn.
Það er rétt, nickið er satt, ég er ekki fullkominn.
Mig byrjaði að gruna þetta fyrir allnokkru þegar ég fór að gera mistök og hluti sem ég græddi ekkert á.
Grunur minn efldist svo þegar ég fattaði að ég get ekki spilað öll sóló í heiminum á gítar.
Síðan var sá grunur staðfestur um daginn, ég komst að…..ég komst að því að………..ég get ekki
flautað með munninn lokaðan og stútfullan af eplasæder!
Já, sú uppgötvun var hræðileg og hún hristi heim minn jafnvel meira en þessi lesning hristir
ykkar. Líf mitt hrundi algjörlega þegar ég komst að þessu í um það bil 10 sekúndur, síðan fór ég í tölvuna og leið betur.
En samt, ég er viss um að þið voruð búin að taka því sem sjálfsögðum hlut að ég væri fullkominn og jafnvel hafa
byggt einhverjar rannsóknir og rök á því. Ég vona að þð fyrirgefið mér fyrir þessa lygi mína sem mig grunaði
jafnvel er ég skrifaði nickið……
Nokkrir hlutir gætu breyst núna, kannski snúið þið baki við mér, kannski ekki, kannski hakkið
þið ykkur inn á tölvuna mína, kannski ekki, kannski fremjið þið sjálfsmorð, kannski ekki og kannski
jafnvel ráðið þið einhvern til að stúta mér eða gerið það sjálf!
Ég vona hins vegar að þið munið sýna mér skilning með þetta mál og munið halda áfram að vera
góð og skemmtileg við mig eins og þið hafið verið.
Hins vegar vona ég að þið farið ekki með þennan sannleik utan /sorp því ég trúi því að aðeins þið séuð
nógu skilingsrík!
En þó að ég sé ekki fullkominn þá er ég góður í ýmsu, ég er til dæmis ekki lélegur á gítar þó ég gæti
verið betri, ég er nokk góður í námi, ég er góður í að safna hári, nokkuð sterkur í ritgerðaskrifum
og alveg frábær í að berjast gegn Pentagon og finna hluti til að nöldra yfir.
Það eru fleiri hlutir sem ég er góður í en maður ætlar nú ekki að hafa þetta endalausan lista.
Ég mun láta þessa kosti nýtast mér og efla þá á meðan ég mun einnig leggja rækt á aðra kosti og stefni
á eitt:
Að verða sannarlega fullkominn!
Þeir hlutir sem ég mun aðallega reyna að ná í leið minni að fullkomnun eru:

Að ná að flauta með lokaðan munn með eplasæder í munninum.
Læta að spila öll sóló í heiminum.
Standa á höndum og taka svo burt hendurar en svífa þá.
Læra að lesa hugsanir.
Dáleiða.
Vera ósýnilegur.
Steypa Pentagon af stóli og svo margt fleira.

Að lokum segji ég bara: Ég vona að ég verði einhvern tíman fullkominn og standi þá undir
væntingum nafns míns!