Jæja kæru sorparar, hér á eftir mun ég upplýsa ykkur um MJÖG leynilega og mikilvæga hluti sem mér verður líklegast refsað fyrir að segja ykkur frá. Ef að þið viljið ekki eiga á hættu að vera elt uppi af Pentagon og jafnvel líflátinn ef ykkur verður náð þá skuluð þið STRAX hætta að lesa, ef að hinsvegar þið viljið komast að sannleikanum svo að þið vitið á hverju þið eigið að passa ykkur, lesið þá áfram á eigin ábyrgð.

Þetta eru niðurstöður sem ég hef komist af í gegnum lífið en hvernig get ég ekki sagt ykkur.

Eins og allir vita eflaust er Pentagon að leyna ýmsu fyrir okkur, geimverum, efni sem mun virka sem óendanlegt eldsneyti fyrir allt saman en hefur ekki verið sett fram vegna hagsmuna kanans, alls konar farartæki og vopn sem þeir hafa ekki viljað setja fram en ég hef komist að ýmsu um það allt saman sem að ef til vill mun koma fram á eftir.
Það sem ekki allir vita hinsvegar er að Pentagon eru að fylgjast með okkur með hverri líðandi sekúndu!
Nú þegar ég hef skrifað seinustu setningu inn í tölvu mína þá vita Pentagon af því og það verður ekki aftur snúið fyrir mig, hins vegar ef þú lesandi góður ert orðinn hræddur þá máttu hætta og þá er ekki víst að þú sért orðinn að skotmarki, ég lofa engu.
Hér á eftir kemur stutt bil svo lesandi geti ákveðið hvort hann á að halda áfram eða hætta við án þess að eiga á hættu að reka augun í einhvern texta á meðan hann hugsar sig um.

Bil hefst.








Bil endar:

Til þeirra sem eru það hugrakkir að halda áfram segji ég: Hér á næstu mínútum munuð þið öðlast mikla vitneskju sem að þið munuð kannski vlija gleyma en kannski ekki, kannski munuð þið nota hana eins og ég til að upplýsa umheiminn um það sem Pentagon eru að gera, kannski munuð þið verða geðveik af ótta um að ykkur verði náð, kannski drepið þið ykkur til að sleppa, kannski látið þið Pentagon vita af þessu þó að það skipti engu máli, þeir vita það þegar, eða kannski trúið þið engu sem ég mun skrifa. Hvað sem þið gerið þá er ég stoltur af ykkur að hafa sýnt það hugrekki að lesa áfram og vona að ykkur verði ekki náð af þeim.

Pentagon hafa fylgst með okkur í tíma og ótíma, jafnvel áður en við vissum að Pentagon væri til hafa þeir fylgst með okkur.
Þetta gæti hafa byrjað aftur á miðöldum þess vegna, hver veit.
En allavega þá eru nokkrir hlutir sem ég er nokkuð viss um að þeir noti til að fylgjast með okkur.

Nr 1. Skafmiðarnir:
Já þessu bjuggust þið eflaust ekki við en þetta er dagsatt. Fyrir ykkur sem nota krónur eða aðra hluti til að skafa af miðunum þurfið þið ekkert mikið að óttast. En þið hin, hér kemur sannleikur sem getur breytt lífi ykkar.
Í skafefninu sem þarf að skafa til að komast að tölum sínum hafa Pentagon og samstarfsaðilar þeirra sett örefni!
Þegar þið skafið þetta af festast örefnin ýmist í fingraförum ykkar, sárum, fötum eða það algengasta, undir nöglunum.
Þegar þetta efni kemst í snertingu við ykkur þá byrjar það strax að virka, það lætur Pentagon vita hvar þið eruð stödd, hver líkamshiti ykkar er, hvort þið eruð svöng, hvaað þið eruð að hugsa og bara ALLT.
En það er lausn, þið getið náð efninu með ykkur með einni lausn, það er eitthvað við efnin í tökkunu má lyklaborði sem að eyðir upp efninu þannig að þið verðið að skrifa mikið og hratt og jafnvel dálítið FAST til að það eyðist.
Ef þið hinsvegar notið hluti þá verðið þið að losa ykkur strax við þá eða þeir vita þetta allt því þetta efni fer í gegnum föt.
NEMA! Þið séuð í gallabuxum, efnið les ekki í gegnum gallabuxur þannig að segjum sem svo að þið notið krónu til að skafa og setjið í gallabuxnavasa þá vita þeir ekkert nema hvar þið eruð.
Þeirri vitneskju getið þið síðan eytt með aðeins einu ráði, þið verðið að taka peninginn og sótthreinsa hann 2-4 sinnum og þá er efnið farið, eða náttúrulega nudda honum við lyklaborð.
Gallabuxurnar áttu að vera fundnar upp fyrir gullgrafara, iss, einhver sniðugur eins og ég fann þær upp til að verjast fyrir þessu efni sem á þeim tímum var einnig notað en ég er ekki viss hvernig þeir notuðu það….
Sama gildir um inneignarkort.

Nr 2. Tölvurnar
Já, eins hræðilegt og það hljómar, Pentagon fylgjast með ykkur í gegnum tölvurnar ykkar! Þeir sjá í gegnum skjáina, heyra í gegnum hljóðkerfið og eru í harðadisknum svo þeir vita allt sem þið gerið í tölvunni. Að sjálfsögðu fylgjast þeir líka með öllu netinu svo að þeir vita bara um það bil allt sem þið gerið á netinu líka.
Aðeins eitt forrit og einn staður eru örugg….Notepad er forritið og Hugi.is/sorp er staðurinn.
Þið sorparar eruð á EINA örgga staðnum á netinu.
Ég væri ekki í hættu með þessa grein venjulega því ég ætla bara að senda hana á sorp (kannski deigluna fyrst ég er hvort eð er kominn í hættu) en þar sem notepad í tölvunni minni er í rugli þá neyddist ég til að nota wordpad sem að því miður er fylgst með. Svo að næst þegar þið eruð að skoða dónó á netinu eða gera eitthvað ólöglegt, keep in mind, þeir vita það, og sjá hvað sem þið gerið á meðan þið eruð að skoða dónó og gera eitthvað ólöglegt.
Við þessu er einnig ein vörn sem er þó ekki beinlínis vörn, að vera bara inn á sorp og nota bara notepad (Gleymdi reyndar að minnast á það, forritið Scumm er einnig öruggt og allir leikir sem þið spilið í því svo að þið megið það líka).

Nr 3. Álpappírinn.
Fólk heldur oft að með álpappír á höfðinu verjist það hugsanalestri, það er RANGT! Í álpappírnu eru þeir líka þó ég viti ekki hvernig! Þegar þið eruð að setja álpappír á hausinn þá ekki bara lesa þeir hugsanir ykkar, þeir koma inn á gagnabanka hjá þeim og einnig ALLAR aðrar hugsanir sem þið hafið hugsað OG þeir geta stýrt þeim! (hugsununum)
Við þessu hafði ég ekki en fundið launs því að álpappírinn virkar reyndar á geimverurnar flestar en ekki Pentagon.
Þá kom Raiden inn í spilið, þegar ég sagði honum frá þessu þá spurði hann að sjálfsögðu “En bökunarpappír?” Þá fékk ég hugmynd, bökunarpappírinn! Pentagon eru ekki í honum og geimverurnar flestar komast ekki í gegnum hann!
Munið að ganga með hjálma úr bökunarpappír ekki álpappír! (það er ekki það sama)

Nr 4. Sjónvarpið

Pentagon fylgjast eins með ykkur í gegnum sjónvarpið og í gegnum tölvurnar nema munurinn er að það sem er öruggt í tellanum er: Alþingi, Lost, The Rocky Horror Picture Show, Tónleikaupptökur og öll myndbönd með eftirfarandi hljómsveitum: Iron Maiden, Hammerfall, Megadeth, Red Hot Chili Peppers, Arch Enemy, Black Sabbath, Led Zeppelin og AC/DC. ((Mér þykir fyrir því Gellan123 ef þú last svona langt en Green Day myndböndin eru Pentagonsmituð)) Það gætu verið fleiri hljómsveitir en ég hef ekki enn komist að því, veit hinsvegar fyrir víst að nokkur myndbönd eru ekki aðeins til að fylgjast með heldur líka fyrir undirmeðvitundarskilaboð, þau eru flest með eftirfarandi hljómsveitum: Metallica, Slipknot, Korn, Cradle Of Filth og öllum píkupopp söngkonum og söngvurum og öllum röppurum nema 2Pac og Outkast. Þessu getið þið reddað með einu góðu ráði, ef þið takið upp þátt í vídeótæki sem er minnst 12 ára á spólu sem er 4 tímar þá getið þið horft á það og allt í góðu lagi, ekki reyna þó að horfa á meðan þið takið það upp aðeins á sjálfa spóluna.

Nr 5. Sundlaugadraslið

Glerdraslið í sundlaugunum sem er á veggjunum í sundlaugum er ekki bara ljós og fyrir öryggisverði (þó að Pentagon hafi reyndar aðgang að öllum öryggismyndavélum og upptökum), Pentagon sjá ykkur í gegnum það! Og ekki bara venjulega heldur eru þetta röntgen myndavélar! Því getið þið bjargað með að synda annað hvort yfir eða kafa undir allt þetta glerdót eða setja bökunarpappír innan á sundfötin, þeir sjá ekki í gegnum hann.

Nr 6. Frakkar

Jebbs, þið lesið rétt, Frakkarnir eru næstum allir útsendarar Pentagon og samstarfsmanna þeirra.
Ástæðan fyrir að franska var búinn til fyrst var því að þeir þurftu dulmál svo skrítið og asnalegt að ekki væri hægt að brjóta það!
Þá vitum við að Pentagon og samstarfsmenn eru alveg frá því að franska byrjaði! Einnig eru flestir hlutir í Frakklandi einhvernveginn Pentagonaðir s.s. Eiffelturnin, Sigurboginn , Louvre og fleira.

Nr 7. Line6

Fyrirtækið Line6 sem er meðal annars þekkt fyrir gítara og magnara er á vegum Pentagon og samstarfsmanna.
Allir gítararnir, magnararnir og effektarnir (nema einn delay effekt að nafni Echo Park) eru Pentagonaðir.
Gítararnir eru t.d með skafmiðaefninu á strengjunum, magnararnir eru t.d. með hlerunargræjum og effektarnir eru t.d með blóðflokksgreingar og táfýluskapandi græjum (maður stígur á effekta fyrir þá sem ekki vita). Einnig hef ég á tilfinningunni að DigiTech séu svona en ég er ekki viss….

Nr 8. Stopptakkin í strætó

Takkin sem maður ýtir á í Strætó til að láta vita að maður sé að fara, hann virkar ekkert.
Þið eruð bara að láta Pentagon fá fingraför og blóðflokk.
Ef þið haldið enn að takkin virki þá getið þið sett bökunarpappír á putta ykkur áður en ýtt er.
Sama gildir um götuljósahnappa, hnappa hjá svona túristadæmi þannig að það er hægt að velja mörg tungumál af útskýringum og takka á sjónvarpsfjarstýringum og leikjatölvu fjarstýringum.

Nr 9. Allar vélar sem maður setur pening í og þær skila einhverju út.

Dæmisaga, í þessari sögu er aðeins notast við tilbúna karaktera: Jón var mjög þyrstur eftir að hafa verið í fótbolta, liðið hans hafði unnið 3-2, hann ákvað að fá sér Fanta að drekka og gekk að sjálfsala, hann setti peninginn í fékk út dós af Fanta.
ÞARNA GERÐI JÓN STÓR MISTÖK SEM AÐ VERÐA EKKI TEKINN AFTUR, Dæmisaga endar.
Þegar þið setjið inn peninginn vita þeir í orðins fyllstu merkingu ALLT um ykkur ef að peningurinn hefur snert bert hold á ykkur, ef að hann hefur hins vegar ekki snert bert hold þá vita þeir bara svona 80% um ykkur.
Ef hinsvegar peningurinn hefur aðeins snert gallaefni og bökunarpappír þá eruð þið í góðum málum…eða hvað?
Þegar dósinni er skilað er búið að spreyja efni utan á dósina sem að virkar svipað og skafmiðaefnið nema það þvæst ekki af nema með því að skrifa á lyklaborð án pásu í um það bil 10 tíma!
Hvað haldið þið að þið getið gert til að stöðva þetta?
Jú jú, notið bökunarpappír eða gallaefni.
Einnig er einn drykkur sem að er efnið í svo að þeir fylgjast með ykkur þegar þið drekkið hann, það er Pepsi Max, eina ráðið til að hindra það er að drekka það úr gleri eða með röri með grænum röndum.

Nr 10. Pavarotti.

Þessi stórsöngvari hefur náð mörgum með tónlist sinni en þeir vita ekki að hann er á vegum Pentagon og samstarfsmanna!
Þetta er einn af þeirra nánustu vinum og hann er sko allsvaðalegur fyrir utan óperurnar, svarta beltið í öllum bardagalistum, hleypur 1500 metrana á 5 sekúndum, getur kýlt í gegnum títaníum, galla efni og bökunarpappír og margt fleira.
Ég hef ekki enn fundið leið til að sigrast á honum aðra enn að halda sig frá honum og hans tónlist því í tóna hans hafa Pentagon sett efni eins ótrúlega og það hljómar og fara beint í heilann á okkur og eru þar í 6 mánuði áður en við þurftum að heyra í honum aftur. Ekki einu sinni gallabuxur og bökunarpappír geta bjargað þessu…grunar reyndar að handklæði sem stendur 42 á geti bjargað málunum ef maður vefur það um eyrun en það er ekki víst.
Ég er nokkuð viss um að hann sé vélmenni.




Jæja.Það er MIKIÐ fleira sem ég mun segja ykkur seinna en núna hef ég ekki tíma, er svangur og er að fara að hitta vini mína.

Þið sem hafið verið svo hugrökk að lesa allt skuluð grípa til bökunarpappírs, gallaefnis, handlæðis og vopns ef að einhver bankar upp á hjá ykkur að óvörum, treystið ekki hverjum sem er skal ég segja ykkur.
Það er ekki víst að ég muni ná að skrifa meira…nokkurntíman því að þeir gætu náð mér….Bless