hér er sorp, um sorp, frá sorpi, til sorps.

eða hvað?

sorp er nefnilega ekki bara sorp og alls ekki rusl.
sorp er svo miklu miklu meira. sorp stendur fyrir sanngirni, ofnbakaðan kjúkling, réttlæti og persónufrelsi.

sorp er eitthvað sem býr í okkur öllum en við þurfum að finna innra með okkur.

á meðan rusl er og verður ekkert annað en gamlir og ónýtir hlutir eða notaður klósettpappír. rusl verður ekki endurnýtt á meðan sorp verður það, aftur og aftur, sorp nýtur eilífs lífs.

sorpið sem okkur öllum er svo kært gæti minnt á jóker í spilastokk. þeir sem kunna ekki að meta hann í spilum eins og svarta pétri hreinlega henda honum úr og sinna engu um hann, jafnvel henda honum í ruslið, en það erum við hinir sönnu sorparar sem höldum lífi í þessum litla jóker og metum hann í svartapétri sem öðrum spilum.

sorp er fyrir alla sem vilja finna það með sér, sorp.

Sorpari kveður að sinni

og biður að heilsa ömmum ykkar og öfum

eða öðru skyldfólki

ásamst gæludýrum

og strútum, mörgæsum, gíröffum, mafíum og fjórfættum selum;)

p.s. hvernig haldið þið að steinaldarmenn hafi skemmt sér og hvernig haldið þið að síðasti maðurinn á jörðinni muni skemmta sér?

…sorp