Eftir að séð og heyrt og DV tóku sig til og stálu öllum SORP markaðnum frá okkur, þá ákváðum við að losa okkur við síðasta admininn og setja þetta áhugamál í frystinn.
EN SVO! Kom frá á sjónarsviðið Hér og Nú sem að stal öllum okkar greinum, copy paste, sem er bannað hérna og því síður bannað HÉÐAN(stela okkar greinum) og gátum við því ekki setið á okkur lengur. Nei, núna er kominn tími fyrir almennilegt sorp og bægja Eiríki Jónssyni útaf markaðnum !
ÞAÐ LÝGUR ENGINN UPP Á BUBBA ! .. Bubbi, við elskum þig.


Hinsvegar voru; 78 greinar, 185 kannanir, 95 myndir og 16 tenglar, (SEXTÁN HEILIR!) í bið, og gat ég því miður ekki lesið yfir allt þetta sorp og þurfti ég því að henda þessu öllu út, því miður :(

Biðst velvirðingar ef að ég hef trampað á einhverjum tilfinningum í ykkar garð .. en þetta var bara of mikið..

En héðan í frá verður sorpið opið og það er upp á ykkur komið að halda því illa lyktandi og skemmtilegt á hverjum degi. Ég mun svo samþykkja :)

SKEMMTIÐ OKKUR OG YKKUR VEL ! :)