ég sé að síðast grein sem var send inn var í mars….. koma svo fólk þið getið þetta!!!

ég vil kalla mig gorminn og á tvo páfagauka, ég er núna í samræmdum prófum og megi Guð standa með mér :D

ég er að vonast eftir því að komast inn í MH en allir segja mér að ef ég tók ekki dönsku prófið þá mun ég þurfa að taka núll áfanga í dönsku :( hvað um það!

Ég er náttúruverndarsinni eða vill kalla mig það (fyrir utan gorminn auðvitað) og hef gaman af því að teikna :D ég elska ís og sérstaklega bragðaref með snickers og jarðaberjum, bæti stundum daim og jarðaberjasósu við þessa blöndu og ég elska það! I love it! En þetta flest kemur fram á kasmir síðunni minni svo ég ætla ekki að vera að drepa fólk úr leiðindum hérna með óþarfa upplýsingum um einhvern vitleysing í vesturbænum.

jæja mér dettur ekkert fleira í hug, ég vildi bara skrifa eitthvað því það fer í taugarnar á mér að “þetta er nú meira sorpið” er enn efst, ég er ekki að reyna að móðga höfundinn þetta var svosum allt í lagi grein :D en common þetta var sent inn 25. mars (eða eitthvað).

Ég má víst ekki fá mér svona fólk.is síðu (það er alltaf eitthvað vandamál) og núna fyrir tveimur dögum var mér sagt að lykilorð yrði sent á netfangið mitt innan 15 mínútna (hóst uhh tveir dagar liðnir strákar hvar er lykilorðið?)

Mig vantar stúku miða á Korn ef einhver vill skipta við mig :D sko ég á stæðis miða en enginn af vinum mínum er í stæði svo ég er tilbúin að borga mismuninn ef einhver vill skipta við mig :D

Kv. Ég
Have a nice day