Það er eitt sem mér finnst allveg ótrúlega pirrandi,
það er að það er fólk sem sendir inn korka eins og á forsíðunni sem eru svo tilgangslausir.
Fólk er að senda þetta bara til þess að fá stig,
svo ég var að pæla hvort það væri ekki hægt að banna fólk sem sendi sona korka í 3 daga eða eitthvað þannig,þá mundi bara vera einhver sem sæi um það að dæma um það hvort þetta væri bara sent fyrir stig.

Sem dæmi tek ég að fyrst þegar ég byrjaði hér á huga langaði mér bara í stig en núna er ég hættur því,en þá sendi ég einu sinni inn á nöldurkorkinn kork sem stóð aðeins:
Ég hata þetta fólk sem er alltaf að nöldra.
Þegar ég sendi þetta inn fattaði ég ekki að ég hataði mig eiginlega því ég var að nöldra.

Eftir að ég sendi inn þann kork sem er ekki langt síðan er ég búinn að sjá nokkra þannig og það er bara soltið pirrandi þegar fólk sendir sona inn.

Svo ég var að pæla hvort það væri ekki hægt að taka sona kerfi í notkunn,að fólk væri bannað í einhvern stuttan tíma eða fengi mínus stig fyrir það?