Einu sinni var kall sem hét Kalli. Kalli var alki sem þjáðist af óstjórnlegri hræðslu gagnvart strútum og hann dýrkaði Britney Spears.
Dag einn var Kalli úti að labba þegar að hann gekk framhjá bar sem hét BRITNEY BARINN og þar voru eingöngu spiluð lög með Britney Spears. Kalli varð að sjálfsögðu uppveðraður yfir þessu vegna þess að þarna sameinuðust tvö helstu áhugamál hans í eitt!
Drykkja og Britney!!!
Kalli þurfti sko ekki að hugsa sig um en gekk rakleitt inn. Þegar inn var komið blasti við honum sú dásamlegasta sjón sem hann hafði nokkurntímann séð! Það voru Britney plaköt allstaðar, vínið flæddi um og Oops I did it again dundi á hlustunum. Þetta var yndislegt!
Kalli gekk beint að barnum og sagði: “Ég ætla að fá stóran bjór í kokteilglasi með röri og svona bleikri regnhlíf!”
Barþjóninn sneri sér við og sagði: “Alveg sjálfsagt!” Svo fór hann að hella bjórnum í kokteilglasið og rétti Kalla það.
“Hey, ekki gleyma rörinu og regnhlífinni!” Sagði Kalli.
“Því miður,” sagði barþjóninn, “Hún Britney kom hérna áðan og tók öll rörin og regnhlífarnar!”
“HA?, er Britney sjálf hérna???” Hrópaði Kalli uppyfir sig steinhissa.
“Jábbs, hún kemur alltaf sjálf fram hérna á miðvikudögum.” sagði barþjónninn sallarólegur.
“VÁ! Þetta er án efa bezti dagur lífs míns!!!” Sagði Kalli og sötraði bjórinn.
“Ertu mikill aðdándi hennar?” Spurði barþjónninn.
“Jahá!!” Svaraði Kalli, “Ég er hennar mesti aðdándi, ég dýrka hana!”
“Jæja, ef svo er þá gæti ég kannski reddað þér einkaviðtali við hana eftir sjóvið!” Hvíslaði barþjónninn að Kalla.
“Er það? Vá fráabært!” Sagði Kalli og varð æsispenntur.
Í sama mund byrjaði Britney að syngja einsog henni einni er lagið, fólkið trylltist þegar að hún hóf upp raust sína og fór að dansa á kynæsandi hátt. Kalli var dolfallinn og starði á sviðið….slefandi. Hann gleymdi jafnvel að drekka bjórinn sinn!! Svo var Britney búin að spila nógu lengi og yfirgaf sviðið (eftir tvö aukalög reyndar) og Kalli varð ennþá spenntari vegna þess að nú var komið að því… Nú mundi hann hitta Britney Spears í eigin persónu!!
Barþjóninn gekk til hans og bað hann um að fylgja sér sem og Kalli gerði. Barþjónninn fór með Kalla inn eftir bleikmáluðum gangi og staðnæmdist við hurð sem á stóð Britney. Hann bankaði á hurðina en beið ekki eftir svari heldur opnaði og gekk rakleitt inn, Kalli fylgdi honum eftir en þegar að þeir komu inn þá sáu þeir dálítið sem enginn hafði búist við….


BRITNEY SPEARS VAR….STRÚTUR!!!!!!!!