Hann rankaði við sér á rannsóknastofu þar sem að hann lá uppá borði, nakinn. Lítill, feitur prófessor stendur yfir honum og syngur atti katti nóa og skoðar Kalla hátt og lágt. “Halló, ég vera Bubbimorthensilíusaralexander Mongólítason og ég rannsaka þig því þú borða rosa mikið af rúsínum og vera brjálaður og nudda sólarolíu á dótakalla,” sagði prófessorinn þegar hann sá að Kalli var vaknaður. “Þú lýgur þessu, prumpurinn þinn, þú ert bara að reyna að brjóta niður sjálfstraust mitt svo að ég hætti að borða rúsínur og eyði öllum tíma mínum með þér, rúsínur eru fíkn, en gettu hvað, ég skora á þig í keppni í amerískum fótbolta og sá sem vinnur fær að eiga þann sem tapar,” æpti Kalli reiður. “OK,” samþykkti Bubbimorthensilíusaralexander Mongólítason. En þá kom Súperman og sagði: “Come on baby, hoya hoya!”
Þá hætti Kalli við að keppa við Bubbimorthensilíusaralexander Mongólítason og kyssti Súperman heitum og ástugum kossi og settist á bakið á honum og þeir flugu burtu. Þegar þeir voru komnir hálfa leið í Hogwartskóla leit Kalli niður og æpti: “AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA, sjáðu þarna Súperman,” og benti niður “,þetta er massaða kindin Unnur!”
Súperman leit niður og sá hana; Hún leit út eins og risavaxinn harðfiskur með rosa mikla ull festa við sig og var eins og hún hefði verið í ræktinni í þrjú ár endalaust. Kalli var hræddur við hana því að hún hafði einu sinni kveikt í video spólunum hans og hún var alltaf að gera grín að honum, alveg þangað til í síðustu viku þegar Kalli ákvað að bjóða henni birginn og kúka í fataskápinn hennar. Þegar Kalli var búinn að hnipra sig saman á bakinu á Súperman og undirbúast fyrir dauða sinn þá sagði Súperman: “Hey, kannski vill hún bara sænga hjá þér!”
Þá glaðnaði yfir Kalla og Unnur sagði: “Það er rétt hjá Súperman, Kalli; Ég vil bara fá þig í bólið!”
Þá fór Súperman og þau fóru heim til Kalla og gerðu dodo.
Eftir mökin fengu þau sér sígarettur, þá allt í einu missti hann meðvitund.
Hvers vegna missti hann meðvitund? Var Kúkur Klósettkafari búinn að lesa dagbókina hans?, voru litlir kettlingar að sniffa hann?, eða var hann bara uppgefinn eftir að ríða Unni?
Fylgist með í næsta kafla.