Halló, ég heiti Basmati Kasaar. Ég þjáist af sjaldgæfum og lífshættulegum
sjúkdómi, lélegum einkunnum á lokaprófum, áralöngum sveindómi, hræðslu við
að vera rænt af mannræningjum og líflátinn með raflosti í endaþarm, og
sektarkennd yfir því að senda ekki áfram 50 billjón keðjubréf sem ég hef
fengið send frá fólki sem trúir því virkilega að ef maður sendir þau áfram,
þá muni aumingja litla sex ára telpan í Arkansas, með brjóstið á enninu,
safna nægum fjármunum til að láta fjarlægja það áður en rauðhálsarnir
foreldrar hennar selja hana í viðundrasýningu sem ferðast um landið vítt og
breitt.


Trúir þú virkilega að Bill Gates ætli sér að gefa þér og öllum öðrum sem
senda áfram tölvupóstinn “hans” 1000 dollara? Hversu mikill hálfviti ertu?
Úúúúúú, sjáðu þetta! Ef ég skruna niður þessa síðu og óska mér, þá fæ ég
drátt hjá öllum Playboy stelpunum sem eru í nýjasta tölublaðinu! Þvílíkt og
annað eins kjaftæði. Sem sagt, þessi skilaboð eru eitt stórt

FUCKYOU til allra þeirra sem hafa ekkert betra að gera en að senda mér
heimskuleg keðjubréf í tölvupósti.

Kannski munu vondu keðjubréfaálfarnir koma heim til mín og misþyrma mér í
boruna á meðan ég sef, fyrir það að hafa ekki haldið áfram keðjunni sem
Jesús kom af stað árið 5 e.K. og kom til Bandaríkjanna í fórum dvergvaxinna
pílagríma um borð í Mayflower og ef það lifir af til ársins 2000 þá kemst
að í Heimsmetabók Guinness fyrir lengstu óslitnu hrinu af blygðunarlausri
heimsku.


Framhald væntanlegt
Fari þeir til andskotans.
ég tel mig vera hugara!!!