Hæ! ég er kominn aftur með nýjar leddara sögur af gærkveldinu en í gær var Evróvision og það var gegjað PARTAY!
Jæja eins og ég sagði þá var gegt stuð og ég sá fullt af nýjum leðurjökkum ég sá F.X/T.D einn Mansonista marr hann var gegt svalur! Guð minn góður hann var svartur alveg niðrá hæla og hann var á strák með sítt hár sem reykti!
En ég var bara á vini Páls sem heitir Gummi, Gummi reykir ekki bara drekkur soldið og það er gegt vond lykt af Gumma.. hann er sona inní sig sko.
Jæja við vorum inná Spotlight að dansa við T.A.T.U Evróvision lagið og þar sá ég hann.. ég sá Jónas.. hann var með eitthverrum manni og var í nýjum Leddara, ég náði aðeins og tala við þennann Leddara en hann yrti bara einu sinní á mig og þá sagði hann “ Gamli helvítis leddari hættu að horfa á eigandann minn ,, ég sagði honum að þetta væri eigandinn minn en hann benti mér á Pál og sagði ” Nei! þetta er þinn eigandi " ég neitaði því og reyndi að fá Gumma til að elta Jónas en hann gerði það ekki sko.
Ég var ansi fúll en ég veit að ég mun hitta Jónas og alla leðurvini mína heima hjá honum.
Ég ætla að finna hann, Ég skal finnann.
Eftir Spotlight fórum við á barinn 22. og þar var PARTAY út í rauðann dauðann.