Ekkert sem skiptir neinu máli!! EKKI LESA ÞETTA!!! Ég var bara að skoða greinarnar á Sorpi svo að mig langaði líka til að gera eina.
Ég hef ekki minnstu hugmynd um hvað ég á að skrifa og það er það sem gerir greinina svo skemmtilega.
Hér sit ég….og skrifa…..
Það var eitthvað rusl um stríðið í Írak í útvarpinu rétt áðan (eins og alltaf). Eru ekki allir að verða viðbjóðslega þreyttir á fréttum um Írak?
Þetta er eins og þegar Díana prinsessa dó. Ég gat ekki farið eða gert neitt án þess að einhver/eitthvað minnti mig á það.
Hey, ég á að skila ritgerð á föstudaginn. Jibbí. Ég er ekki byrjaður og ég veit ekkert hvað ég á að gera, svo að ég ákvað að skrifa grein inn á sorp.
Það liggja opnar kennslubækur fyrir framan mig og það eru einhverjar myndir af dauðum stjórnmálamönnum í þeim, vá spennandi. Ég þoli ekki sögu…foj.
Kötturinn minn gekk framhjá.
Vinur minn á örugglega hudrað möppur fullar af sögum sem passa akkúrat inn á sorp áhugamálið. Ég er lengi búinn að reyna að fá hann til þess að posta þær.
Það er leiðinlegt veður úti. Ég var að klára kvöldmatinn. Það var fiskur.
Er einhver með asnalegan enter takka á hljómtækjunum sínum? Ég er með einn. Þegar ég ýti á hann þá virka engir aðrir takkar. Ég skil ekki til hvers hann er….

(=8< veit einhver hvað þetta er?
Þetta er bavíani, þú veist, eins og í Lion King.
(=8<
Hann er vitlaus. Hér kemur saga.

Einu sinni var kavíar sem hér Friðbert. Hann átti tólf einbýlishús og hafði ekki kosningarétt.
Einu sinni þegar þyrla var að juggla 3 einbýlishúsum seldi Kalli Kristfjerd öll hlutabréfin sín í fyrirtæki ostaskerans og…pla.

Þetta helvíti grillar hausinn á manni. Ég skil ekki hvernir vitleysingar eins og SlimShady nenna að skrifa milljón svona sögur á dag. BÆ!!!!!!

-Murderdoll
Sprankton