Fleiri heimskulegar sögur Hér kemur önnur frétt frá Darwinawards.com.

Þessi gerðist í Júlí 2002 í Wisconsin (þessir bandaríkjamenn eru sérstaklega miklir hálfvitar). Tveir fullir menn voru að fíflast þegar önnur þeirra manaði hinn að skjóta sig með þremur sígarettustubbum. Hann sagðist “vilja vita hvernig það væri”.

Vinurinn í hlýðni hlóð byssuna þremur sígarettustubbum og setti byssuskot fyrir aftan hvern stubb til að tryggja það að sígarettustubbarnir kæmust úr hlaupinu.

Síðan skaut hann vin sinn ú tveggja metra færi. Vinurinn sem varð fyrir skotunum dó síðan af tveimur sígarettustubbum í hausinn og einum í hjartað.


En þessi var kannski í styttra laginu þannig að hér kemur önnur frá darwinawards.com:

(2000, Kalifornía). Kúabóndi nokkur heyrði að nautgripaprump væri að mestu gert úr metani og væri mjög sprengifimt. Bóndinn ætlaði að reyna þessa staðhæfingu. Dag einn þegar ein af kúnum hans var við mjaltarvélina, beið hann þar til kúin lyfti skottinu sem kúabændur vita að merkir gaslosun og á að forðast. Hetjan okkar kveikti í eldspýtu. Hann naut logans hinsvega aðeins í nokkrar sekúndur, áður en kúin fékk vöðvasamdrátt. Aumingja bóndinn sprakk, en það leiddi til þess að vinnumaðurinn hans varð fyrir fæti á kúnni og dó líka.

Vona að þið höfðuð gaman að þessari sögu

Weedy

Ps. Seinni sagan er ekki sönn þar sem metan þarf að vera undir miklum þrýstingi til að springa.