Allt sem þú vildir vita um kringlótt box Boxin eru mjög sakleysisleg að sjá, svona kringlótt, skærlit með loki. Í rauninni eru þau full af leyndarmálum sem enginn á að vita. Inni í þessum boxum er t.d. aðferð til að gera saltstöng í laginu eins og þroskaheft panda með mynd af brasilískum jólasveinum á stórutá.

Ástæða: óþekkt.


Forseti Bandaríkjanna hefur oft þurft að ná í allskonar sérvitringa, vitleysingja, þroskaheftar pöndur og þessa fáránlegu límmiða sem eru alltaf í glerinu þegar maður er að máta sólgleraugu til að eyða boxunum. Hann reyndi m.a. að setja hlátursgas í letidýr smitað af lekanda, láta síðan letidýrið horfa á Beina útsendingu af Alþingi í fimm daga án þess að þingmenn tóku sér hlé (þetta var næstum-árlegt-Alþingis-maraþon, og það var haldinn áróður um að enginn mátti missa af því!), en ekkert gekk upp.

Allir voru á því að gefast upp þar til trommari með öldrunarveiki og brotnar klaufisagði að það væri bara eitt hægt að gera. Maður á að borða vöfflur með mold sem hefur myndast úr rotþró.

Ástæða: Hverjum er ekki sama?


En núna gerðu þeir svolítið sem þeir hefðu átt að láta ógert. Þeir átu vöfflur úr venjulegri mold. Það er um það bil jafn vont og að dulbúast eins og Greenpeace gaur í hvalveiðistofnun.

Gíraffar byrjuðu að fjölga sér hraðar en kanínur á viagra og það leiddi til þess að orðið “háttsettur” fékk nýja merkingu.

Kengúrur byrjuðu að drekka og var fólk byrjað “að drekka sig kengúrufullan”. Kengúrurnar undir áhrifum áfengis urðu bráðum umhverfisvandamál og það var ekki lengur nógu mikið pláss fyrir kengúrurnar þannig að þær söfnuðu saman liði og dáleiddu fólk til að fljúga með sig til Rússlands í drykkjuferð. En kengúrurnar sneru aldrei til baka.

Og þetta er sagan um það hvernig kringlótt box geta valdið heimsenda.

Weedy