Japanskir sjálfsmorðssíamshamstrar Þetta er flipp ritgerð sem ég gerði í 8.bekk (er núna í 9.bekk)

Hvað er þetta á himninum? Er þetta spaghettí? Nei, þetta er Súperman. Nei, þetta er japanskur sjálfsmorðssíamshamstur. Með latneska heitið krípus litlus. Hamstrarnir hafa á síðustu áratugum verið orsakir margra hörmunga. Eins og t.d. Sahara eyðimörkin, Pearl Harbor árásin, fyrri heimstyrjöldin og þeir gengu meira að segja svo langt að þeir stálu sjónvarpsfjarstýringu Hitlers, en það er af þeim ástæðum sem Hitler varð nasisti. Hann byrjaði að hata gyðinga en Hitler hélt að Japanir væru gyðingar.

Japanskir sjálfsmorðssíamshamstrar hafa síðustu árin verið á rannsóknarstofum svo sem við tilraunir á miltisbrandi.

Hugmyndir eru uppi að ennþá séu nokkrir lausie og blandast rússneskum dverghömstrum og eru algjörlega ónæmi fyrir dönsku Dumle-kúlunum. Ónefndur aðili sem er vinur minn og heitir Kristján, er undir grun um að hafa tvo morðóða rússneska síamshamstra, en þeirra einkenni er að þeir geta litið út saklausir en eru í raun valdamiklir meðal Vestur-Íslendinga sem borða þorramat í morgunnmat og eru haldnir ólæknandi sjúkdóm sem hefur öll einkenni andfýlu.

Það eru fáir sem geta stoppað japönsku sjálfsmorðssíamshamstrana, en þó eru það helst mongólskir mörgæsatemjarar sem álíta sjálfa sig vera hreindýr. Eiginleikar þeirra eru aðallega fólgnir í ristlinum, en þar geyma þeir leynivopnið: Hamborgari með brokkólí, majónesi, hvítlauk, smjöri og sveppum.

Þetta leynivopn er mefnilega svo mikið lostæti hjá þessum hömstrum að þeir deyja að lokinni máltíð og enginn verður fyrir afleiðingum þess. Afleiðingar þess, þegar japanskur sjálfsmorðssíamshamstur drepst, eru þær að þá byrjar undarlegt gas að koma úr framtönnunum sem dáleiðir alla til að selja notuð strokleður.

Hörmungar sjálfsmorðssíamshamstranna hafa líka komið fram í tónlistarheiminum. Þetta eru leynilega samtök en koma opinberlega fram undir dulnefnum. Þeir allra hættulegustu kallast N*Sync, Enrique Iglesias og Five.

Valdamestu meðlimir í þessum flokki, mafíu eða hvað sem þetta er, eru nokkrir og hér koma profile-in þeirra:

Kríp Mýsla
Yfirforingi í japönsku höfuðstöðvunum Hamstrakind. Sérhæfir sig í að lifa af leynivopnið og fýlusprengjum. Innihald sprengjanna:óþekkt.
Tók á sig sökina fyrir útrýmingu á hafmeyjum en slapp með dularfullum hætti en þegar búið var að yfirheyra alla fangaverðina og fansst út að Kríp Mýsla hafði mútað honum með TÓMATSÓSU.

Tumrafen Hamsatólg.
Liðsforingi hjá bandarísku andspyrnuhömstrunum. Var naumlega sýknaður fyrir morð á samstarfsmanni og frænda, Strafen Hamstratólg, með skeið. Mútaði kviðdómnum með FRÖNSKUM KARTÖFLUM.

Augljóst er að Kríp Mýsla og Tumrafen Hamsatólg vinna saman. FRANKAR KARTÖFLUR eru nefnilega góðar með TÓMATSÓSU.

En snuum okkur aftur að heildinni. Kenningar eru uppi um að ef japanskir sjálfsmorðssíamshamstrar blandaðir rússneskum dverghömstrum, læri að tala, þá yrði tungumálið eitthvað í líkingu við ítölsku. Við þurfum sem betur fer ekki að örvænta, því þetta eru ekki traustar heimildir, enda koma þær frá geðklofa Chihuahua á sterum, sem heldur að hann sé eina von Bandaríkjanna til að bjarga heiminum.


Hér á eftir eru leibeiningar sem eiga eftir að hjálpa þér að verjast hömstrum í daglegu lífi.

1.Hafðu alltaf með þér gítar og skæri. Ef hamstur kemur að þér skaltu klippa streng og miða að pungnum. Þetta hefur þær afleiðingar að pungurinn framleiðir arsenik og breytir pungnum í bilaða sekkjapípu.

2.Ef hamstur kemur að þér og þú getur talað dönsku, þá sér hamsturinn að þú ert búinn að missa vitið og fremur ekki sjálfsmorð sem gæti drepið þig. Ef þú ert sænskumælandi, hlauptu. Ekki einu sinni spurja.

3.Ef hamstur kemur að þér og er með bilaða sekkjapípu í stað pungs, þá skaltu slíta punginn/sekkjapípuna og spila spila Gamla Nóa nokkrum sinnum, eða þar til mongólskur mörgæsatemjari sem heldur að hann sé hreindýr gefur hamstrinum leynivopnið sem drepur hamsturinn án afleiðinganna.


Vona að þetta hafi verið eins fræðandi fyrir ykkur og þetta var fyrir mig.

Weedy