Nokkrar leiðir til að stytta sér stundir með elg Elgdýr, dýr myrkursins. Einn af máttarstólpum vestræns samfélags, jafnframt því að veita Finnum og öðrum þriðju heims löndum kærkomna tilbreytingu í skammdeginu hér á norðurhjara veraldar.

En hví ættu samar og aðrir vanþróaðir kannibalar að hafa alla þá skemmtun sem hægt er að draga úr jöxlum þessarar göfugu skepnu?
Hér eru nokkrar leiðir sem Íslendingar geta nýtt sér til þess að skemmta sér með elgdýri.

1. Taktu elgdýrið með þér til Vestmanneyja um verslunarmannahelgi. Gefðu því íslenskan landa og ráfaðu um með það í eftirdragi syngjandi “Birta bíddeftir mér” og hótaðu stórum gaurum að elgdýrið berji þá taki þeir ekki undir.

2. Makaðu hnetusmjöri yfir elgdýrið og taktu það með þér inn á nýlistasafnið í miðbænum. Vektu aðdáun listamanna er þú snæðir samlokur af baki dýrsins.

3. Notaðu elgdýrið til að brenna geisladiska.

4. Skreyttu elgdýrið með pappamassa og settu mexíkanahatt á höfuð þess. Farðu síðan inn á Three Amigos og heimtaðu stóran skammt af guacamóle “til að róa dýrið í okkur öllum”.

5. Notaðu elgdýrið til að finna týnda staka sokka.

6. Farðu með elgdýrið í gyllingu og biddu kærustunnar/kærastans. Dragðu síðan elgdýr um fingur hans / hennar.

7. Kenndu elgdýrinu box og skoraðu á sigurvegarann í
boxkeppninni 8. mars.

8. Fylltu elgdýrið af helíum og notaðu það sem staðgengil blöðru á 17. júní.

9. Settu nokkrar fjalir undir maga dýrsins og notaðu það sem snjóbretti.

10. Settu ól utan um háls foreldra þinna, gakktu síðan um miðbæinn hönd í hönd með elgdýrinu talandi um hvað þú ætlir að gera eftir menntaskóla. Segðu “hæll” oft.

11. Taktu elgdýrið með þér á Rottweiler tónleika og spurðu hvort það megi vera með þeim í gengi.

12. Ríddu á elgdýrinu til Skagastrandar. Skoraðu á Hallbjörn í burtreiðar. Dansaðu vals við elgdýrið á gröf hans.

13. Tengdu 330 volta rafstraum í elgdýrið og notaðu sem straumbreyti.

14. Rektu vatnsslöngu innum óæðri enda elgdýrsins og notaðu það sem gosbrunn.

15. Hreinsaðu innan úr elgdýrinu, húðaðu innvolsið með plastík og notaðu sem bong.

16. Kenndu elgdýrinu íslenska stafsetningu og gerðu það að admin á huga.

17. Fylltu elgdýrið af sprengiefni og sendu það á beit fyrir utan stjórnarráðið.

18. Læknaðu krabbamein

19. Fáðu Kára Stefáns í lið með þér, fynnið saman erfðamengi elgdýrs, splæsið það við erfðaefni albatross og fljúgðu síðan um háloftin á þínum eigin Elgatross, eða Albaelg.

20. Fáðu 5 elgdýr, kenndu þeim að dansa og lúkka kúl og gerðu búðu til Boy-Elg-Band.

21. Dulbúðu elgdýrið sem Birgittu Haukdal, laumaðu því inn í grunnskóla reykjavíkur og hlæðu þig máttlausan yfir grunlausum grunnskælingum að dást að Birgittu Elgdal.


Þetta eru aðeins örfá dæmi um notagildi elgsins í íslensku nútíma samfélagi, og líklegt er að læknavísindin muni finna þúsundir annara nota á næstu árum. Það er mikið tilhlökkunarefni og iðar greinarhöfundur í skinninu eftir þessum nýju og spennandi tímum.

Takk fyrir mig,
www.atlividar.com