Sköpunarverk guðs Guð skapaði asnann og sagði við hann:
“Þú verður asni. Þú vinnur baki brotnu frá sólarupprás til
sólarlags og berð þungar byrðar. Þú étur gras, státar ekki af neinum gáfum og
lifir í 50 ár.”
Og asninn svaraði: “Ég skal vera asni en að lifa í 50 ár er allt of mikið.
Hafðu þau 20.”
Og Guð samþykkti það.

Guð skapaði hundinn og sagði við hann:
“Þú verður hundur. Þú gæti húss mannsins og verður besti vinur hans.
Þú þiggur leifarnar sem hann réttir þér og lifir í 25 ár.” Og
hundurinn svaraði: “Ég skal vera hundur en að lifa í 25 ár er allt of
mikið. Hafðu þau 10.”
Og Guð samþykkti það.

Guð skapaði apann og sagði við hann:
“Þú verður api. Þú sveiflar þér úr einu tré í annað og gerir
ýmsar kúnstir. Þú verður skemmtilegur og lifir í 20 ár.” Og apinn svaraði:
“Ég skal vera api en að lifa í 20 ár er allt of mikið. Hafðu þau 10.”
Og Guð samþykkti það.

Að lokum skapaði Guð manninn og sagði við hann:
“Þú verður maður, eina vitsmunaveran á jarðkringlunni. Þú notar gáfur
þínar til að verða drottnari allra dýra. Þú munt ráða yfir heiminum og
lifa í 20 ár.” Og maðurinn svaraði: “Ég skal vera maður en að lifa í 20 ár
er allt of stutt. Veittu mér að auki þau 30 ár sem asninn vildi ekki, árin
15 sem hundurinn vildi ekki og árin 10 sem apinn vildi ekki.”
Og Guð samþykkti það.

Og æ síðan lifir maðurinn í 20 ár eins og maður. Þá giftir hann sig
og eyðir 30 árum eins og asni, þ.e. vinnur baki brotnu frá sólarupprás
til sólarlags og ber þungar byrðar. Þegar börnin eru flutt að heiman
lifir hann í 15 ár eins og hundur; gætir hússins og borðar allt sem að
honum er rétt.
Og eftir að hann sest í helgan stein lifir hann eins og api síðustu
10 árin, fer hús úr húsi og gerir ýmsar kúnstir til að skemmta
barnabörnunum.