Hasspípa Lennons til sölu


Þótt ótrúlegt sé er verið að selja sorpaða hluti í eigu Bítlana. Þetta eru nefnilega maríjúanabox og pípa úr eigu Johns Lennons og eru þessir munir metnir á um 2,5-3 milljónir króna. Þeir og fleiri munir sem tengjast bresku Bítlunum verða boðnir upp í Lundúnum síðar í þessum mánuði.


Drew Barrymore af blóðsuguættum

Bandaríska leikkonan Drew Barrymore telur að í sér renni vampírublóð.
Barrymore komst að þessari niðurstöðu þegar hún komst að því að hægt er að rekja ættir fjölskyldu hennar til Transilvaníu og jafnvel til Drakúla greifa.

Í viðtali segir hún að það skjóti stoðum undir þessa kenningu sína að hún hefur ofnæmi fyrir hvítlauk, en eins og unnendur hryllingsmynda vita þola vampírur ekki það grænmeti. Þá segir Drew að Jaid móðir hennar klæðist aðeins svörtu.

„Mér finnst því mjög líklegt að ég sé að hluta vampíra,“ segir Drew Barrymore



Heimildir fengnar af <a href=”http://www.mbl.is">www.mbl.is</a
Ef þú átt eitthvað vantalað við mig….slepptu því að segja það.