Stuðdrusslan Britney Spears lét heldur betur gera lítið úr sér þegar hún varð fórnarlamb Kanadískra útvarpsmanna á dögunum.
Britney lenti í símagabbi en útvarpsmennirnir eitilhressu fengu í lið með sér konu sem þóttist vera Celen Dion. “Celen” kynnti sig og sagðist vera að undirbúa plötu til styrktar heimavinnandi húsmæðrum og spurði Britney hvort hún væri til í að taka lagið með golfaranum sífúla Tiger Woods. Britney hoppaði af gleði og sagði samstundis já. Lagið sem “Celen” vildi fá Britney til að syngja með Tígra átti að heita “Hole in one”.
Þegar Britney var svo sagt að um gabb væri að ræða tók stúlkan því ótrúlega vel og hreinlega skellti uppúr. Útvarpsmennirnir sögðu það hafa verið ótrúlega lítið mál að redda númerinu hjá skutluni.