Maður í Bandaríkjunum var sektaður eftir að hann skaut óvart sjálfan sig þegar hann var að máta buxur í búð. Maðurinn heitir Robert E Slay og er 55 ára gamall. Þegar hann ætlaði að klæða sig í buxurnar sem hann hafði tekið sér til mátunar þá datt byssan hans úr vasa á jakka hans með þeim afleiðingum að skot hljóp úr byssunni. Skotið fór í gegnum fótinn á Robert og stöðvaðist síðan í vegg.

Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hans og hann ákærður fyrir að hafa borið ólöglegt vopn, skotið úr byssu á almenningssvæði og skemmt vegginn.