Núna fer að styttast...
Nú þegar innan við mánuðu er til úrslita í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fer áhugamálið að iða af lífi. Þá fara notendur á fullt með spurningar, spekúleringar og fleira um keppnina góðu. Í ár ætlum við stjórnendur heldur betur ekki að halda okkur til hlés heldur ætlum við að auka flæði efnis inn á áhugamálið jafnt og þétt fram að kepninni. Til að þið kæru Hugarar getið orðið ennþá virkari læt ég fylgja með gróflega áætlun um hvenær nýtt efni frá stjórnendum sé væntanlegt.
  • Fyrr í dag setti ég inn glæslega niðurtalningu fyrir keppnina. Auk þess er grein okkar stjórnenda áhugamálsins þar sem við dæmum lögin úr fyrri forkeppninni birt í kvöld.
  • N.k. föstudag, þann 4. maí verður fyrsta Eurovision triviað birt.
  • Þann 11. maí verður grein stjórnenda áhugamálsins með dómum fyrir lög úr seinni forkeppninni auk forgangslandanna birt. Auk þess verða niðurstöður og lausnir úr trivianu birtar.
  • Þann 18. maí verður nýtt Eurovision trivia birt.
  • Auk þess fer allt á fullt síðustu vikuna fyrir keppnina. Við munum telja niður með skemmtilegu efni s.s. grein með eftirminnilegustu lögunum úr keppninni frá 2000 - 2010 og skemmtilegu efni úr eldri keppnum. Svo að sjálfssögðu verður líka niðurstöður og lausnir úr seinna trivianu birtar fyrir keppnina.
  • Þar til viðbótar verðum við dugleg að uppfæra "skemmtilegt efni" kubbinn.

Fylgist spennt með! :)
Sviðstjóri á hugi.is