Gleymt lykilorð
Nýskráning
Söngvakeppnir

Söngvakeppnir

3.323 eru með Söngvakeppnir sem áhugamál
10.426 stig
210 greinar
1.047 þræðir
70 tilkynningar
5 pistlar
572 myndir
510 kannanir
13.087 álit
Meira

Ofurhugar

Helgan Helgan 466 stig
apoppins apoppins 418 stig
Karat Karat 362 stig
Grettir Grettir 324 stig
Lindal Lindal 304 stig
kjanafes kjanafes 298 stig
johnnyd johnnyd 254 stig

Stjórnendur

Stigin fyrir fyrri forkeppnina (10 álit)

Stigin fyrir fyrri forkeppnina Stigin fyrir fyrri forkeppnina

Martin og Stefan (4 álit)

Martin og Stefan F.Y.R Macedonia, bræðurnir Marteinn og Stefán Filipovski.

Ísland að fara yfirum? (1 álit)

Ísland að fara yfirum? Mér finnst þetta nú heldur langt genið hjá okkur.

Jóhanna í fyrri undankeppninni (3 álit)

Jóhanna í fyrri undankeppninni Jóhanna stóð sig með prýði í fyrri undankeppninni og gott lag og góður flutningur var greinilega að virka því hún komst áfram í aðalkeppnina laugardaginn 16.maí:)

Sakis Rouvas (3 álit)

Sakis Rouvas Sakis Rouvas syngur “this is our night” fyrir hönd Grikklands í Eurovision í ár. Hann keppti einnig fyrir hönd Grikklands árið 2004 með lagið “shake it”, sem þið ættuð að kannast við, ásamt því að vera kynnir þegar Eurovisionkeppnin var haldin í Aþenu árið 2006

Alexander Rybak (5 álit)

Alexander Rybak Þetta er Alexander Rybak sem keppir fyrir hönd Noregs í Eurovision í ár. Elska lagið þeirra og svo var sviðsframkoman hans mjög flott. Vona að þetta atriði verði flott á sviðinu í Moskvu :)

Is it true? (4 álit)

Is it true? Jóhanna Guðrún

Susan Boyle (6 álit)

Susan Boyle Ný stjarna raunveruleikasöngvakeppninnar Britain's got talent. http://www.youtube.com/watch?v=9lp0IWv8QZY&feature=related hér er myndbandið með henni.

Wacken (2 álit)

Wacken Í ár verður í fyrsta sinn haldin á Íslandi undan­keppni fyrir alþjóðlegu hljómsveitakeppnina Wacken Metal Battle. Wacken er nafnið á litlum smábæ í Norður-Þýskalandi sem á hverju sumri umturnast í einn allsherjar risa þunga­rokksbæ þegar Wacken : Open : Air hátíðin er haldin. Fyrstu helgina í ágúst þjarka þar inn fyrir bæjar­mörkin 70.000 gestir hvaðanæva úr heiminum til að hlusta á kanónur þungarokksins spila. Í ár er svo komið að hátíðin verður haldin í 20. skiptið og því verður mikið um dýrðir.

Á síðustu árum hafa skipuleggjendur hátíðarinnar gefið fjöldanum öllum af ungum og efnilegum hljóm­sveitum tækifæri til að koma og spila á þessari hátíð. Í því skyni settu þeir á laggirnar hljómsveitakeppnina Wacken Metal Battle árið 2004. Sigursveit keppn­innar hlýtur m.a. að launum hljómplötusamning fyrir allan heiminn, magn­ara, trommu­sett og fullt af öðrum græjum og auðvitað heiðurinn af því að spila að ári fyrir mörg þúsund manns á mun betri stað í prógramminu á þessari hátíð. Þeim er auk þess boðið að spila á hinum ýmsum undankeppnum næstu Metal Battle keppni út um allan heim!

Einn stærsti þungarokksviðburður ársins
Til þess að gera þetta að enn stærri viðburð en þegar er, verður haldið sérstakt pre-party daginn fyrir keppnina, eða 17. apríl. Þar koma saman 5 af frambærilegustu þungarokkssveitum landsins til þess að hita upp fyrir keppnina daginn eftir. Sjálf undankeppnin verður s.s. haldin 18. apríl en bæði kvöldin verða haldin á Dillon Sportbar í Hafnarfirði.
Það er líklega ekki vanmat að segja að þessi viðburður sé einn stærsti þungarokksviðburður ársins (sem ekki inniheldur erlenda artista), ef ekki sá stærsti. Það er ekki á hverjum degi sem íslenskar þungarokkssveitir munu koma fram á Wacken Open Air, virtasta og stærsta þungarokksfestivali heims eins og verður einmitt afleiðing þessarar keppni.

Keppniskvöldið
Þær sveitir sem taka þátt í Metal Battle kvöldinu voru valdar af dómnefnd úr innsendum umsóknum og koma fram í þeirri röð sem þær eru hérna (efsta sveitin spilar síðast):

Diabolus
Severed Crotch
Perla
Gone Postal
Celestine
Beneath
Wistaria

Laugardagurinn 18. apríl
Húsið opnar 18:00 - Byrjar 18:30
Ekkert aldurstakmark!
Miðaverð: 1000 í forsölu - 1.300 við hurð

Metal Battle Pre Party kvöldið

Changer
Agent Fresco
Munnriður
In Siren
Carpe Noctem

Föstudagurinn 17. apríl
Húsið opnar 21:30 - Byrjar 22:30
18 ára aldurstakmark
Miðaverð: 1000 í forsölu - 1.300 við hurð

Jóhanna Guðrún (10 álit)

Jóhanna Guðrún Söngvakeppni Sjónvarpsins 2009 - Jóhanna Guðrún vann með lagið Is It True! Hún flytur lag Íslendinga í Eurovision þann 12.maí (og vonandi 16.maí líka;))
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok