Jæja. þá er eurovision að skella á og margir bíða spenntir eftir að sjá hana Silvíu á sviði.

Ég hef aldrei verið neinn fan að henni og eiginlega bara þolað hana ekki, en þá fattaði ég eiginlega ekki húmorinn á bakvið hana. Een ég er buin að fatta hann núna og ég verð að segja að þótt óþolandi og pirrandi karakterinn hennar er, þá er ekki annað hægt en að virða hana mikils sem leikkonu.

Það eru ekki nærri því allir sem að myndu getað leikið Silvíu Nótt svona vel. Og það fyndna er, að hún er að gera grín af öllum þeim sem að fíla hana, og ýkir það passlega nóg til að allir elska að hata hana.

En er svo bara ekki að halda með Finnlandi & Íslandi ;D


Finnland & Ísland 4 the way!! ;D

hvernig haldiði svo að kjellunni gangi í Aþenu?