Já vildi bara spyrja hér hvort að það hefði enginn fengið gæsahúð þegar Regína Ósk fór á háu nóturnar! Shit, það var ekkert smá flott hjá henni..

En eru ekki allir bara sáttir við úrslitinn?
ég er mjög sátt.. vissi að Silvía myndi taka þetta en hefði líka alveg verið mjög ánægð ef Regína hefði unnið, var alveg sama. En silvía var alveg fábær þarna, sérstaklega þegar hún þakkaði öllum upphitunar hljómsveitunum fyrir það var snilld!

Annars er ég farin að hlakka til að sjá múnderínguna sem hún verður í Aþenu, verður án efa skrautlega miðað við það sem við höfum fengið að sjá :)
- Er gaman af biluðu bulli? Skoppaðu þá eins og fiskur í algjöru rugli!!