jæja, hvaða lag fannst fólki svo flottast af þessum?
mér finnst alveg ótrúlega erfitt að dæma um þetta þar sem þetta eru allt ótrúlega góð lög.
ég var fyrst núna að átta mig á því hvað lagið my number one átti sannarlega skilið að vinna keppnina í ár, maður var bara svo uppfullur af því að íslenska lagið væri best af öllum að maður sá það varla :P
en já, ég held ég verði að segja lagið Diva, með Dina International (ef ég man rétt).
hvað finnst ykkur?

og verð að bæta við, finnst rosalega gaman að koma með svona uppákomu þar sem rifjaðir eru upp gamlir tímar og svona :)