Ég fór á net-flakk hérna áðan og komst að því að allar þjóðirnar höfðu fengið sömu hugmynd og við… Að senda strák… Ég taldi 17 stráka, 10 stelpur og 9 sönggrúppur!
Mér finnst sko Jónsi frábær söngvari (verð samt að viðurkenna að ég hataði hann fyrst) og lagið Heaven kom mér á óvart þegar ég hlustaði á það í 3 sinn. Ég var sko viss um (með fullri virðingu við Jónsa) að allar konur, allir hommar og allar stelpur (kannski einhverji karlar?) myndu kjósa hann… Hann er nú líka andlits fríður drengur… en ég er ekki viss núna,,, það eru um 14 aðrir menn sem eru nokkuð sætir líka sm munu syngja… Við vonum að þeir misstíga sig í söngnum ;)…