Hæ hugarar!

Er búin að hlusta á öll lögin á netinu sem keppa í Eurovision 2003, og er komin með mína niðurstöðu: Mér finnst Spánn vera með LANG flottasta lagið! Mér finnst hin lögin vera bara leiðinleg og oftar en ekki eru karl og kona að syngja það saman! Fyrir þá sem langa til að hlusta á lögin á netinu er þetta slóðin: www.eirovizija.lv/public/23236.html.
En þá kemur að spurningunni sem er ætluð til þeirra sem eru búin að sjá myndböndin á netinu: Vitið þið hvernig hægt er að save-a myndböndin sem eru á netinu inn á tölvuna, þá er ég ekki að tala um á disk eða diskling, bara inn á my videos eða my music????????
Vona að einhver geti hjálpað mér,
Hekna:)<br><br>—————–
Málsháttur sem á vel við mig…. Margur verður af aurum api;)
—————-