Bwaahahahahahahahahahahahahahahahhahahahahahahhahahahhahahahahhahahahah.

Jæja ég stóð þó við mitt loforð en ég ætlaði að hlægja að ykkur ef Silvía vinnur ekki og ég gerði það. Þarna sjáið þið krakkaskammirnar ykkar að það þýðir ekkert að vera með stæla og móðga aðrar þjóðir og vera með dónaskap og auglýsa sig sem fávita. *ahem* Já ég er auðvitað kannski ekki undantekning á þessu en ég er ekki með stæla við neina þjóðir og læt sem ég eigi allt. Málið er að þetta var alltog mikið púður í þetta lagt. Og persónulega fannst mér þetta ekkert fyndið fyrir fimm aura.

Ég hlakka til að vita hvað mikið kostnaðurinn fór í þessa vitleysu og vonandi verður sent rukkun á alla frá sjónvarpinu sem kusu hana með gsm hahahahaha. *lol*

Yfirtaka austantjaldarþjóðarinnar verður gífurleg í úrslitunum ef þetta heldur áfram. Feginn er ég sem Íslendingur að við tökum ekki lengur þátt í þessu vitleysu lengur. Svo er þetta bara gott á ykkur ungu gsm þjóðina. Reyndar skiptir engu máli hvort við hefðum átt að senda Silvíu eða Regínu Ósk lengur.

Ég var búinn að vara ykkur við þessu að austantjaldalöndin væri með yfirvöldin í þessari keppni. Þau norðurlönd sem eru núna í úrslitunum eru bara heppinn að geta tekið þátt en ég held að þeim verði líka sparkað aftur í úrslitunum og austantjaldalöndin verða eftir. En svona fór það.

Krónan á kannski eftir að hækka eftir þetta því þetta er orðið alltof rándýrt spaug fyrir okkur Íslendingana.

Ég er líklega eini ánægði Íslendingurinn um þessar mundir útaf tapi hennar Silvíu Nætur.

Ég vona að greinin mín hafi náð að hughreysta ykkur.