Eurovision á fimmtudaginn já þetta er að skella á…

Allir eða vona það svona flestir vita að Silvía Night eins og hún vill láta kalla sig þessa daganna mun stíga á svið í Aþenu n.k. fimmtudagskvöld. Fyrir þá sem ekki sáu Kastljós þáttinn núna um daginn þar sem sýndur var búningur Silvíu þá má lýsa honum þannig að þetta er einhver hvít flík blandað með bleiku og já segjum að þetta sé mjög svo hennar stíll, þið skiljið vonandi hvað ég meina ?, fallegi bleiki hælaskórinn er með í för, en það er sá sami og finna má á forsíðu ljóðabókar hennar, er kom út á dögunum. Skórinn er notaður sem rennibraut, og það sem setur punktinn yfir i-ð er svaka flottir sleikjóbrjóstsykursstafir sem prýða sviðið vel. Auðvitað fara svo hommi og nammi úr að neðan í lokinn og verður gaman að heyra hvað fólkið í salnum gerir.. ;) eflaust fá einhverjir ellismellir fyrir hjartað :D.

En annars er Silvía búin að fá gríðarlega mikla athygli úti, eins og við var að búast, ekki satt?. Blaðamannafundur þar sem hún las yfirlýsingu sína var sá fjölmennasti sem haldinn hefur verið og mættu fjöldinn allur af fjölmiðlum til að sjá dívuna tjá sig. Bendi á www.ruv.is/eurovision þar sem þið getið nálgast þessi myndskeið af þessu öllu.

En er svo ekki málið að fara/kíkja/halda í eurovision teiti? Og fagna því ef hún kemst áfam eða ekki? Mér er eiginlega alveg sama hvort hún fer áfram eða ekki, bara svo lengi sem hún gefur sig alla í þetta og trylli allt!

En hvernig lýst ykkur á að hafa Sigmar sem kynni? Mér lýst alveg FEIKILEGA vel á það, er half fegin að Gísli verði ekki í ár kynnir, veit ekki afhverju en hann fer svo eitthvað í mínar fínustu.

En svona í lokinn endilega svara þessu ef þið nennið:

1. Er Silvía alveg búin að klúðra þessu með dónaskap við aðra keppendur á fock-dæminu?
2. Eigum við einhvern sjéns?
3. Þreytt/ur á þessu öllu Silvíu dóti?
4. Hvort grillið þið eða pantið pizzu á eurokvöldi???

Endilega svar og þessi síðasta er eiginlega svona meira fyrir mig þar sem ég verð að vinna þetta kvöld og er að vona að það verði ekki allt BRJÁLAÐ að gera í pizzugerð hehe.

Segi svo bara góða skemmtun. ?
- Er gaman af biluðu bulli? Skoppaðu þá eins og fiskur í algjöru rugli!!