Eurovision Staðreyndir um Ísland í Eurovision:

Ísland hefur tekið þátt 19 sinnum og með aðeins 2 alvöru lög, Minn hinsti dans með Páli Óskari og Sókrates með Sverri Stormsker og Stebba Hilmars. - Nína er frábært lag en ekki í Eurovision

Við getum breytt því með því að kjósa Silvíu Nótt til sigurs

Finnland gefur Íslandi aldrei stig

Ef við myndum senda Birgittu aftur heldur Evrópa að Íslendingar séu 100. Annað come-back í Eurovision, annað árið í röð

Sveinn Rúnar Sigurðsson skítur á sig í úrslitakeppninni með lögin sín

Einu lögin í forkeppninni í ár sem eru með einhverju viti eru að sjálfsögðu Til hamingju Ísland, Andvaka og Þér við hlið

Íslendingar taka Eurovision alvarlegast allra þjóða í Evrópu

Alvarlegra en Svíþjóð

Það er alvarlegt

Litlar stelpur sem eru með Írafár ruglið í sér kjósa Birgittu

Ég er búinn að endurhlusta á öll lögin sem eru í úrslitakeppnina og Silvía Nótt fær 65% atkvæða á aldursflokknum 11-49 ára, Andvaka fær atkvæði frá +50 ára og Birgitta frá -10 ára

Mér bíður við myndinni hérna efst af Birgittu að syngja OPEEEN YOUR HEART ! arrg - Þetta er ekki staðreynd