Já eins og kannski glöggt fólk hefur tekið eftir er undankeppni fyrir eurovision n.k. laugardag. Þar munu stíga á stökk ýmsir valinkunnir tónlistarmenn og flytja lög fyrir landann. Keppnin á laugardaginn er fyrsta kvöldið af þremur og munu átta lög spreyta sig á að komast áfram, en þess má geta að einungis fjögur lög komast áfram í hverjum þætti. Við landsmenn fáum tækifæri til þess að kjósa í símakosningu og verða svo öll lögin sem komast áfram flutt í lokakeppninni þann 18. febrúar, en þá verður einnig símakosning og velur þjóðin sinn fulltrúa til að taka þátt í aðalkeppninnni sem verður haldin í Aþenu seinna á þessu ári.
Endilega tökum öll þátt.. því eurovision keppnin er nú eitt af því sem sameinar alla þjóðina fyrir framan skjáinn þótt það viðurkenni það ekki allir! :)

En lögin sem munu keppa næsta laugardag eru:

1. María - eftir Roland Hartwell
2. Sést það ekki á mér? - eftir Sigurð Örn Jónsson
3. Stundin - Staðurinn - eftir Ómar Ragnarsson
4. Ég sé - eftir Írisi Kristinsdóttur
5.Það sem verður - eftir Hallgrím Óskarsson
6. Í faðmi þér - eftir Ingva Þór Kormáksson
7. Þér við hlið - eftir Trausta Bjarnason
8. Strengjadans - eftir Davíð Olgeirsson

Endilega hringið og takið þátt í að velja næstu vonarstjörnu Íslendinga.. en númerið sem hringt er í er: 900-200 og svo númer þess lags sem þú villt velja þ.e. 1,2,3,4,5,6,7 eða 8.
- Er gaman af biluðu bulli? Skoppaðu þá eins og fiskur í algjöru rugli!!