Úrslitin! Hæhæ, rosalega var ég vonsvikinn þegar við lentum í 19 sæti!!!Nú þurfum við semsagt að keppa í undanúrslitunum á næsta ári. Ég er nú ekkert að álasa Jónsa greyinu fyrir neitt, hann gerði þetta bara ágætlega en var kannski svoldið taugaóstyrkur í byrjun og það gerði lagið svoldið kraftlaust. Ég heyrði að hann hefði beðið um að ekki yrði tekin nærmynd af honum þegar hann rembdist svona, hehe, en það var samt gert……ég verð að viðurkenna að þessar æðar fara í mínar fínustu!! :)Jæja, mér finnst allavega að við hefðu átt að fá fleiri stig en 16!!!!Úkraína var vel að sigrinum komin finnst mér því mér finnst þetta geðveikt flott lag, þetta er líka svo mikið “show”!! Holland fannst mér líka flott!Jónsi segist vera ánægður með árangurinn og hann hlakki mikið til að koma heim en mest til að hitta son sinn aftur.

endilega kíkið á þessa síðu ef þið viljið lesa um alla textana í keppninni og lögin og flytjendurnar!!

http://eurovision.tv/english/index.htm

Takk fyir mig!! :)