Rússar kærðu Írland en það var sýknað Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum þá asnaðist ég til að lesa fréttablaðið og þá rakst ég á frekar skondna frétt. Þessi frétt var um það að Rússar voru svo hissa á því að t.A.T.u lentu ekki í fyrsta sæti að þeir kærðu Írland fyrir að hafa svindlað og þar sem það er Eurovision áhugamál hérna á huga þá fannst mér það við hæfi að senda þetta hingað. Þar sem ég er ekki beint að stunda þetta áhugamál daglega þá hef ég ekki hugmynd um hvort þetta hafi komið hingað áður eða ekki.

Írar sýknaðir af svidlásökunum:

,,Írar hafa verið sýknaðir af ásökunum rússneska ríkissjónvarpsins um að hafa svindlað. Írar brugðu á það ráð að láta atkvæði bráðabirgðadómnefndar gilda eftir að símkerfið í landinu gaf sig vegna álags. Atkvæði dómnefndarinnar voru ekki rússnenska lesbíudúettinum t.A.T.u. í hag.
Vegna þess hversu mjótt var á mununum í endann hélt rússneska ríkissjónvarpið því fram að stúlkurnar hefðu unnið ef atkvæði almennings hefðu komist í gegn í tæka tíð. Starfsmenn stöðvarinnar gerðu mikið mál úr þessu og hvöttu til fjöldamótmæla.
Eins og allir muna var keppnin í ár óvenju spennandi og mörðu Tyrkir rétt svo sigur sem ekki varð ljós fyrr en síðasta hafði opinberað stig sín. Tyrkir unnu með 167 stigum en í öðru sæti urðu Belgar, aðeins tvemur stigum á eftir. T.A.T.u. stúlkurnar höfnuðu í þriðja sæti.
Framkvæmdarstjórn keppninar tók málið í rannsókn og útskurðaði að Írar hefðu brugðist rétt við og sakvæmt reglum keppninar.”

Persónulega fannst mér Rússnenska lagið ömurlegt.

Heimildir: Fréttablaðið bls 28
Admin@hp since 26. june 2003 - 10:25