Eins og sjá má hafa orðið breytingar á korkunum.
Ég er búin að breyta nöfnum þeirra korka sem fyrir voru. Annar er nú fyrir skólana og hinn (sem áður var merktur N.F.N.V. að mig minnir og enginn vissi til hvers var) um félagslífið í skólunum.

Að auki bjó ég til tvo nýja korkaflokka. Annar þeirra kallast Spurt og svarað og eins og nafnið gefur til kynna er hægt að koma þar með spurningar og svör við ýmsu sem varðar skólamálin. Hinn korkurinn á að vera fyrir allt efni sem viðkemur samræmdum prófum.

Vonandi er þetta góð viðbót fyrir áhugamálið.

Karat.